Page 1 of 2

leiðinlegur gangur þar til maður nær upp snúning á vélina

PostPosted: Tue 11. May 2010 16:19
by Zed III
Ég hef verið að lenda í því undnfarið að bíllinn gangi svolítið illa fyrst þegar ég hef sett hann í gang og þar til ég næ upp almennilegum snúning á vélina. Bíllinn höktir mikið og hikstar við inngjöf þar til maður nær upp snúningi en þá verður hann fínn (finnst þetta ekki vera vacumleki þar sem þetta hættir).

Þetta er meira áberandi þegar bíllinn hefur staðið í smá tíma en hann þarf þó ekki endilega að standa lengi svo þetta .

Ég setti í ný bosch kerti og það breytti engu.

Getur þetta tengst hægagangsrofanum þar sem hægagangurinn er líka leiðinlegur, hann rokkar upp og niður í snúning, en mig grunar hægagangsrofan í því samhengi.

Re: leiðinlegur gangur þar til maður nær upp snúning á vélin

PostPosted: Tue 11. May 2010 16:45
by Jón Ragnar
En súrefnisskynjarinn?

Re: leiðinlegur gangur þar til maður nær upp snúning á vélin

PostPosted: Tue 11. May 2010 16:49
by Zed III
Spurning, en hann það er bara búið að keyra á honum max 8 þús km.

Tvisvar hefur það komið fyrir að drepist á honum eftir nokkra metra og þá getur verið smá maus að starta honum aftur.

Re: leiðinlegur gangur þar til maður nær upp snúning á vélin

PostPosted: Tue 11. May 2010 17:02
by gstuning
hljómar eins og vacuum leki fyrir mér.

Re: leiðinlegur gangur þar til maður nær upp snúning á vélin

PostPosted: Tue 11. May 2010 18:51
by Einarsss
hefur ekki bara gleymst að loka á eitthvað þegar þú skelltir m50 manifoldinu?

Re: leiðinlegur gangur þar til maður nær upp snúning á vélin

PostPosted: Tue 11. May 2010 18:54
by doddi1
ég veit ekkert hvað ég er að gera með að commenta á þetta...

en getur verið að þetta sé eitthvað vanos tengt? ertu kannski ekki með vanos?

Re: leiðinlegur gangur þar til maður nær upp snúning á vélin

PostPosted: Tue 11. May 2010 19:19
by Zed III
Ógangurinn í hægaganginum var líka í gangi þegar hin vélin var í. Það er ennþá sama tölva, rafkerfi, súrefnisskynjari, sveifarásskynjari, knastásskynjari, hægagangsrofi og manifold (og auðvitað bensíndæla).

Ég útilokaði vacuum leka þar sem þetta er ekki vesen þegar leið og ég næ honum upp í snúning og kemur ekki meðan bíllinn er í gangi eftir það. Kannski er það ekki rétt hjá mér.

Þetta gæti verið vanos tengt, þar sem þetta er vanos vél en vanosið er ekki tengt.

Kannski ætti maður bara að koma sér í að skipta um rafkerfi og sjá hvort það breytir einhverju.

Re: leiðinlegur gangur þar til maður nær upp snúning á vélin

PostPosted: Tue 11. May 2010 21:41
by doddi1
Zed III wrote:Ógangurinn í hægaganginum var líka í gangi þegar hin vélin var í. Það er ennþá sama tölva, rafkerfi, súrefnisskynjari, sveifarásskynjari, knastásskynjari, hægagangsrofi og manifold (og auðvitað bensíndæla).

Ég útilokaði vacuum leka þar sem þetta er ekki vesen þegar leið og ég næ honum upp í snúning og kemur ekki meðan bíllinn er í gangi eftir það. Kannski er það ekki rétt hjá mér.

Þetta gæti verið vanos tengt, þar sem þetta er vanos vél en vanosið er ekki tengt.

Kannski ætti maður bara að koma sér í að skipta um rafkerfi og sjá hvort það breytir einhverju.



geturðu tekið upp myndband eða eitthvað til að lýsa þessu eitthvað betur...


minn gerir soldið svipað þegar hann er kaldur, hann dettur stundum niður í 800 snúninga í hægagangi og er við það að drepa á sér en rýkur svo örstutt upp í 1500 snúninga eins og einhver hafi tiplað á bensíngjöfina fyrir mann, svo mallar hann rólega í 1000-1100sn.

ef maður keyrir hann aðeins og leyfir honum bara að hitna hægt og rólega þá hættir þetta á 2-3 mínútum.

en ef maður lætur hann bara ganga í hægagangi þá gerir hann þetta aftur og aftur þangað til það drepst á honum eftir 2-3 mínútur.


ath, ég er ekki að reyna að stela þræðinum þínum og fá bilanagreiningu :P
hann hefur látið svona í 2 ár, þetta hefur ekkert angrað mig. þetta á víst að vera algengt í z3.




spurning um hvort þetta sé eitthvað svipað og hjá þér bara aðeins ýktara version.

Re: leiðinlegur gangur þar til maður nær upp snúning á vélin

PostPosted: Wed 12. May 2010 08:18
by Zed III
hægagangurinn er í þessa átt og þetta hættir ekki þegar hann er orðinn heitur:

http://www.youtube.com/watch?v=SqiovWXfpcw

En ég er ekki viss að það tengist þessum leiðinlega gang þar til ég næ snúning.

Það fylgir þessu annars mikil beinsíneyðsla, vel yfir 20 lítrar á 100 km.

Re: leiðinlegur gangur þar til maður nær upp snúning á vélin

PostPosted: Wed 12. May 2010 08:24
by Einarsss
Þarftu ekki bara að skella vanos loomi og setja rétta tölvu við vélina?

Ef bíllinn er mjög ríkur þá getur lausagangurinn rokkað upp og niður og erfitt að fá vélina uppá snúning ef kertin eru að drukkna í bensíni

Re: leiðinlegur gangur þar til maður nær upp snúning á vélin

PostPosted: Wed 12. May 2010 08:29
by Zed III
Einarsss wrote:Þarftu ekki bara að skella vanos loomi og setja rétta tölvu við vélina?

Ef bíllinn er mjög ríkur þá getur lausagangurinn rokkað upp og niður og erfitt að fá vélina uppá snúning ef kertin eru að drukkna í bensíni


humm, þetta finnst mér góð kenning.

Tölvan sem fer á er þó líka tölva fyrir m50b25, þó með Vanos.

Re: leiðinlegur gangur þar til maður nær upp snúning á vélin

PostPosted: Wed 12. May 2010 08:33
by gstuning
Þarft að vera með MAF og spíssa sem henta tölvunni sem þú ert að nota

Re: leiðinlegur gangur þar til maður nær upp snúning á vélin

PostPosted: Wed 12. May 2010 08:36
by Zed III
Það er maf á leiðinni sem passar við 413 tölvuna (Bosch Motronic M3.3.1), og ég á spíssa sem komu með m52b28

Eru nokkuð mismunandi spíssar milli siemens rafkerfis og bosch (ég get voanandi notað gömlu spíssana) ?

Re: leiðinlegur gangur þar til maður nær upp snúning á vélin

PostPosted: Wed 12. May 2010 09:02
by gstuning
án þess að fletta upp númerunum þá veit ég barasta ekki.

Re: leiðinlegur gangur þar til maður nær upp snúning á vélin

PostPosted: Wed 12. May 2010 09:20
by Zed III
nú veit ég ekki hvort þetta gangi á milli en þetta er amk með Siemens merkingu

No. Description Supplement Qty From Up To Part Number Price Notes
03 INJECTION VALVE SIEMENS 6 09/1998 13537546244 $122.42

Ættu ekki samt 2.5l spíssar að duga ? Ég skoðaði bæði bosch og siemens spíssa á realoem og þeir sem eru á 2.8 vélum eru yfirleitt bara á 2.8 vélunum.