Page 1 of 2

bmw z3 coilover - spurning

PostPosted: Mon 10. May 2010 22:40
by Alex GST
Passar þetta coilover kerfi í z3 2.8L ?


er nokkuð viss um að það passi að framan, en veit ekki með að aftan..


http://www.racelandus.com/p-59-raceland ... w-e36.aspx


þetta er semsagt coilover kerfi í e36

Re: bmw z3 coilover - spurning

PostPosted: Mon 10. May 2010 22:48
by birkire
passar að framan en ekki að aftan

z3 er með e30 afturstell

Re: bmw z3 coilover - spurning

PostPosted: Mon 10. May 2010 22:55
by Alex GST
:argh:

Re: bmw z3 coilover - spurning

PostPosted: Tue 11. May 2010 00:18
by doddi1
Alex GST wrote::argh:



af hverju viltu coilover?

viltu ekki frekar eyða pening í m54 manifold?

polybushings

strut brace

camber/caster plötur

eða styrkingu á subframe.

svo geturðu keypt þér bilstein dempara og einhverja gorma á sirka 800$


*edit*

fjöðrun f. z3 = http://www.tcklineracing.com/suspension.htm

Re: bmw z3 coilover - spurning

PostPosted: Tue 11. May 2010 00:46
by Alex GST
það er margt annað á to do list. og coilover er eitt af þeim.



panta líklega næsta sumar Ksport coilover kerfi, sem er flott merki. það er á u.þ.b 160 þús úti með sendingarkostnað. svo er tollur ofan á það.



er með H&R gorma núna, og langar í stífari stillanlega fjöðrun = coilover :)


en ég rakst á þetta kerfi og fannst það ódýrt, þess vegna var eg að spyrjast fyrir hvort þetta passaði að aftan.

Re: bmw z3 coilover - spurning

PostPosted: Tue 11. May 2010 04:39
by birkire
gætir svosem alveg keypt raceland kerfið og selt aftari hlutann, notað peninginn i e30 ebay coilovera og svo góða bilstein sport eða kw dempara ef þú vilt vera cheap á þessu

Re: bmw z3 coilover - spurning

PostPosted: Tue 11. May 2010 04:41
by Alex GST
raceland kerfið er c.a 80 kall hingað komið, bæti frekar við öðrum 80 kalli og fæ flott ksport kerfi, en það verður ekki fyrr en næst sumar bara

Re: bmw z3 coilover - spurning

PostPosted: Tue 11. May 2010 04:55
by birkire
k-sport er samt ekkert það flott merki.. gott fyrir peninginn þó, bull að vera kaupa einhver super kerfi á 300þ eins og staðan er núna

Re: bmw z3 coilover - spurning

PostPosted: Tue 11. May 2010 08:04
by Jón Ragnar
Mín reynsla er sú að coilovers er þannig alveg óþarfi

Meina hversu margir nenna að skrúfa þetta til og frá.

Við erum með coilovers í Golfinum og það er algjört pain að ná þessu góðu.

Setupið sem ég er með í gula sem er H&R Track kit og það er úber gott.
Kostaði 700$ á Tirerack, get alveg klárlega mælt með þannig frekar :)

Re: bmw z3 coilover - spurning

PostPosted: Tue 11. May 2010 11:44
by JOGA
Ég er mikill áhugamaður um fjöðrun en hef ekki átt coilovers þó.

Ég trúi staðfastlega á gildi góðra dempara/gorma blöndu. Þar ertu með vel uppsett kerfi sem henta vel fyrir bíla sem eru notaðir alla daga. Held að hitt sé mjög oft overkill nema að bíll sé notaður gagngert til fíflagangs.

Ég var með orginal Avus M-Tech pakka í gamla 328i. Það er sem sagt Bilstein demparar, M3 Camber og fóðringauppsetning + eitthvað fleira. Alveg unun að keyra þann bíl bæði hratt og hægt og þoldi samt fínt eld gamlar steinagötur í Edinborg (svona hlaðnar fornaldargötur).

Er með Sachs Super Touring í núverandi. Stefni svo á það að fá mér Eibach, H&R eða sambærilega gorma með þeim og herma eftir Avus pakkanum m.t.t. fóðringa og þess háttar. Held það verði alveg í lagi :thup:

Re: bmw z3 coilover - spurning

PostPosted: Tue 11. May 2010 14:57
by Freyr Gauti
Ertu að nota orginal dempara með H&R gormunum? Ef þú ert að því þá myndi ég byrja á að setja stífari dempara með þeim, finnur hellings mun strax þar.

Re: bmw z3 coilover - spurning

PostPosted: Thu 13. May 2010 00:55
by Maddi..
John Rogers wrote:Mín reynsla er sú að coilovers er þannig alveg óþarfi

Meina hversu margir nenna að skrúfa þetta til og frá.

Við erum með coilovers í Golfinum og það er algjört pain að ná þessu góðu.

Setupið sem ég er með í gula sem er H&R Track kit og það er úber gott.
Kostaði 700$ á Tirerack, get alveg klárlega mælt með þannig frekar :)


Fannst nú voða lítið mál að finna réttu hæðina þegar ég var að þessu. :)
Svo er planið að hækka hann aðeins í vetur, nenni ekki að keyra hann svona þá. Það finnst mér voðalega þægilegur kostur.

Re: bmw z3 coilover - spurning

PostPosted: Thu 13. May 2010 03:25
by Alex GST
Maddi.. wrote:
John Rogers wrote:Mín reynsla er sú að coilovers er þannig alveg óþarfi

Meina hversu margir nenna að skrúfa þetta til og frá.

Við erum með coilovers í Golfinum og það er algjört pain að ná þessu góðu.

Setupið sem ég er með í gula sem er H&R Track kit og það er úber gott.
Kostaði 700$ á Tirerack, get alveg klárlega mælt með þannig frekar :)


Fannst nú voða lítið mál að finna réttu hæðina þegar ég var að þessu. :)
Svo er planið að hækka hann aðeins í vetur, nenni ekki að keyra hann svona þá. Það finnst mér voðalega þægilegur kostur.




akkurat það sem ég var að hugsa, mig langar líka svo að hafa hann meeeeegalágann stundum :oops:


þá vill eg geta skrúfað eitthvað :D

Re: bmw z3 coilover - spurning

PostPosted: Thu 13. May 2010 09:48
by doddi1
coil over er algert overkill til þess eins að geta hækkað bìlinn um 2cm à veturna. Þetta er ætlað ì brautarnotkun. Vesenið er ekki þess virði. En það er að sjàlfsögðu bara mìn skoðun.

Re: bmw z3 coilover - spurning

PostPosted: Fri 21. May 2010 21:49
by Maddi..
Fer bara eftir hverjum og einum segi ég.
Ég setti mitt kerfi undir aðallega til að lúkka og höndla betur í daily driving, kem ekki til með að nota bílinn mikið á braut, nema þá ef maður mætir á einstaka driftæfingar. Hann er ekki ætlaður sem track græja.