Page 1 of 1

Rúðuþurrkuvesen, E46 320d 2003

PostPosted: Fri 07. May 2010 20:24
by mofozzi
Sælir, hvað vita menn hérna um rúðuþurrkuvesen. Konan var á rúntinum í rigningu og allt í einu hættu þurrkurnar að virka hjá henni, núna virka þær stundum en bara á hæsta hraða, ekkert á lægri hraða. Þetta er bíll með regnskynjara ef að það skiptir einhverju máli. Er þetta eitthvað sem þið haldið að sé hægt að lesa út úr bílnum eða þarf ég að fara að leita að relayi sem gæti verið bilað eða vír sem er í sundur ???

Re: Rúðuþurrkuvesen, E46 320d 2003

PostPosted: Fri 07. May 2010 23:30
by ///MR HUNG
Ætli rofinn sjálfur sé ekki dauður bara.

Re: Rúðuþurrkuvesen, E46 320d 2003

PostPosted: Fri 07. May 2010 23:43
by mofozzi
Þá bara rofinn í stýrinu ? kíki á það á morgun, hef heyrt að það komi af og til upp vesen með rain sensorinn en skoða rofann sjálfann á morgun

Re: Rúðuþurrkuvesen, E46 320d 2003

PostPosted: Sat 08. May 2010 10:48
by Zed III
sensorinn er bara í gangi á lægstu stillingunni.

Re: Rúðuþurrkuvesen, E46 320d 2003

PostPosted: Mon 10. May 2010 21:52
by mofozzi
ok á lægstu stillingunni... ég er algjör búðingur með þennan bíl, hef aldrei átt BMW áður, hvernig stilli ég sensorinn upp??

Re: Rúðuþurrkuvesen, E46 320d 2003

PostPosted: Mon 10. May 2010 23:00
by ///MR HUNG
Ég skal lána þér rofa til að prófa.

Re: Rúðuþurrkuvesen, E46 320d 2003

PostPosted: Thu 13. May 2010 13:16
by mofozzi
Þetta virðist ekki vera rofinn, frekar sambandsleysi í mótornum, ætlaði að rífa þurrkurnar af áðan og losaði róna af þeim og var svo aðeins að banka á boltann sem þurrkurnar eru boltaðar á og þá small allt í lag... og virkar. Þannig að þetta lítur út eins og sambandsleysi í mótor eða tengingunni við mótorinn. En á meðan allt virkar að þá hef ég eiginlega ekki tíma til að rífa mótorinn úr og skoða þetta betur, verður að bíða betri tíma. takk samt fyrir boðið nonni