Page 1 of 1

Taka í sundur Depo E36 ljós

PostPosted: Sat 01. May 2010 22:02
by JOGA
Er með króm Depo E36 ljós sem ég bara verð að ná í sundur til að gluða yfir krómið :lol:

Vantar að vita hvernig ég get náð þessu í sundur án þess að brjóta. Finn engar góðar leiðbeiningar fyrir svona ljós.

Var svo að velta því fyrir mér hvort venjulegt sprey sé nógu gott á þetta. Þarf eitthvað hitaþolið?
Er með satin svart sprey sem mér líkar mjög vil (áferðina þ.e.) væri til í að nota það ef það er safe.
Og þarf ég grunn á þetta?


Skrúfið nú frá viskunni :)


Úr þessu:
Image

Í þetta:
Image

Re: Taka í sundur Depo E36 ljós

PostPosted: Sat 01. May 2010 22:15
by IceDev
Krylon Fusion, ætti alveg að þola þann varma sem kemur af ljósunum

Svo er auðvitað algjört MUST að taka pics af prósessinu og sýna hvernig þetta lookar svo :thup:

Re: Taka í sundur Depo E36 ljós

PostPosted: Sat 01. May 2010 22:21
by crashed
mitt ráð er að henda þessu eða nota það, en þú þarft að hitta plastið í kringum glerið og spenna glerið úr þegar kítið er farið að míkjast upp. get lefit þér að setja ljósið í hitaklefa í höfnum ef þú vilt, en með venjulegum hitablásara að þá tekur þetta langan tíma og óvíst hvort þú slepur við að brjóta glerið eða blast ramman

Re: Taka í sundur Depo E36 ljós

PostPosted: Sat 01. May 2010 22:23
by IceDev

Re: Taka í sundur Depo E36 ljós

PostPosted: Sat 01. May 2010 22:30
by crashed
mundu bara að merkja á glerinu hversu djúft það á að fara inní ramman aftur þegar þú límir ljósið saman aftur og nátúrulega vera 100 prósent viss um að líma það það vel saman að það verði eingin rakka myndun í því

Re: Taka í sundur Depo E36 ljós

PostPosted: Sat 01. May 2010 22:39
by JOGA
Takk fyrir þetta. Ég er samt skít hræddur við þetta :argh:
Þori varla að byrja á þessu núna þar sem ég þarf að nota bílinn á mánudag og hef ekki allan daginn á morgunn.

Hvar fæ ég svona fancy sprey Óskar?

Re: Taka í sundur Depo E36 ljós

PostPosted: Sat 01. May 2010 23:28
by IceDev
Byko/Húsasmiðjan/Poulsen

Bara finna spray sem er sérhannað til að loða við plast

Re: Taka í sundur Depo E36 ljós

PostPosted: Sun 02. May 2010 10:12
by andrif
Ég veit um einn sem hefur verið að gera þetta við ljós og hann skellir þeim inní bakaraofninn í ca 40-60 mín á ca 80-100 og þá er kíttið laust og liðugt bara kippa þeim snökkt í sundur til að kíttið lendir ekki inní ljósonum leiðinlegt að ná því í burtu og hann hefur ekki verið að bæta kítti eða lími á milli bara hitað aftur þegar það er búið að mála ljósin að innann og aldrei lent í raka vandamálum

Re: Taka í sundur Depo E36 ljós

PostPosted: Sun 02. May 2010 23:19
by ellipjakkur
mjög fínt að nota bara hitablásara, skrúfjárn og dúkahníf í þetta, ég tók svona depo ljós í sundur einu sinni og þetta var ekkert svo agalega erfitt,, smá dund bara

svo límdi ég bara saman með sílikon kítti og þetta lak aldrei né filltist af móðu og hef tekið mörg ljós í sundur og það hefur aldrei lekið hingað til

Image
Image
Image
úr þessu
Image
í þetta
Image

Re: Taka í sundur Depo E36 ljós

PostPosted: Mon 03. May 2010 06:53
by BirkirB
Það sem Ellipjakkur sagði...
notaði hitabyssu og skrúfjárn og dúkahníf á oem ljósin mín...Svo bara kítti til að líma þetta saman aftur