Page 1 of 2
Gormar

Posted:
Fri 30. Apr 2010 00:02
by MaggiGunn
Sælir, ég er með smá spurningar um gorma.
Var að velta fyrir mér í fyrsta lagi hvar ég fæ þetta á þokkalegu verði? Persónulega finnst mér of mikið að borga 30-40.000 kall fyrir þetta en það er verðið sem ég fékk á sínum tíma hérna á Ísl. Eru einhverjar síður sem þið mælið með eða vitið um einhvern sem er að selja svona?
Annars var ég að spá hvort Það væri mikið mál að skella þessu undir?... og verða þetta að vera spes gormar í minn bíl eða er það sveigjanlegt? (er með E46). Svo var ég að hugsa um 60/40 lækkun, er það ekki bara solid?
Kveðja Maggi
Re: Gormar

Posted:
Fri 30. Apr 2010 00:08
by srr
Það er bara MJÖG vel sloppið að fá lækkunargorma á 30-40 þúsund kr í dag.
Ég keypti Vogtland lækkunargorma í fyrra af eBay.de og hingað komnir voru þeir í 40-50 þúsund kr ef ég man rétt.
Re: Gormar

Posted:
Fri 30. Apr 2010 00:14
by MaggiGunn
Nú okey! Finnst eins og svona hlutir ættu að vera ódýrir, en hvað veit ég?

Re: Gormar

Posted:
Fri 30. Apr 2010 09:12
by Zed III
TB var með lækkunargorma í e36 á c.a 20 þús.
en þá vantar auðvitað nýja dempara...
Re: Gormar

Posted:
Sat 01. May 2010 21:09
by 98.OKT
Ég var að kaupa lækkunargorma í minn um daginn hjá TB, og þeir kostuðu mig um 40.000kr- þeir eru 45-30 lækkun
Re: Gormar

Posted:
Sun 02. May 2010 16:00
by MaggiGunn
Ég fór á föst og ath þetta.. og þeir eiga bara 45/30 á 40.000 kr.
Hvernig kemur það annars út?
Re: Gormar

Posted:
Sun 02. May 2010 21:39
by 98.OKT
Það kemur fínt út, en ég hefði samt alveg verið til í að hafa lækkunina 60 að framan

Re: Gormar

Posted:
Tue 04. May 2010 21:56
by MaggiGunn
Já sammála því, mig langar mikið frekar í 60/40. Ef ég finn það ekki á netinu
þá enda ég með að splæsa í 45/30. Ég hugsa að það væri samt betra yfir
veturinn. Gæti alveg trúað því að 60/40 yrði algjör leiðindi yfir vetratíman.
Re: Gormar

Posted:
Tue 04. May 2010 22:43
by ///MR HUNG
MaggiGunn wrote:Já sammála því, mig langar mikið frekar í 60/40. Ef ég finn það ekki á netinu
þá enda ég með að splæsa í 45/30. Ég hugsa að það væri samt betra yfir
veturinn. Gæti alveg trúað því að 60/40 yrði algjör leiðindi yfir vetratíman.
Nei nei maður er bara í smá vinnu fyrir vegagerðina en það er í góðu samt.
Re: Gormar

Posted:
Tue 04. May 2010 23:04
by Jón Ragnar
Keyrði 60/40 núna í vetur á 195/55/15 og það var ekkert mál
Annað mál að komast yfir mishæðir eins og hraðahindranir

Re: Gormar

Posted:
Tue 04. May 2010 23:27
by ///MR HUNG
Mig minnir að þessi sé 60/60 og ég sé nú ekki neitt vandamál með hraðahindranir og annað.

Re: Gormar

Posted:
Tue 04. May 2010 23:39
by MaggiGunn
Nú okey hélt það væri verra. En er alveg möst að redda nýjum dempurum í leiðinni eða?
Félagi minn sem vinnur á verkstæði sagði að það væri óþarfi. Maður er búinn að heyra
frekar mismunandi skoðanir um þetta..
Re: Gormar

Posted:
Tue 04. May 2010 23:52
by ///MR HUNG
Nei ég er með orginal dempara í báðum lækkuðu hjá mér og það skiptir engu.
Var á þessum svona í vetur og fannst það bara í góðu.
Enda var varla vetur

Re: Gormar

Posted:
Tue 04. May 2010 23:59
by MaggiGunn
Sá þennan hjá þér um daginn, virkilega smekklegur!

Hvaða lækkun er þetta annars?
En smá spurning þar sem þú veist töluvert um E46, veistu e-ð hvort þessir myndu fitta undir venjulegan E46?
viewtopic.php?f=12&t=42041Er að reyna að leita á netinu hvernig gormar þetta eru og hvort þeir fitti en ég er ekki sá klárasti í þessu.
Re: Gormar

Posted:
Wed 05. May 2010 00:15
by ///MR HUNG
Ég veit ekki hvað sá grái er með en reikna með 60/60 því hann gæti varla verið mikið lærri en þetta.
En þú hefur ekkert að gera með þessa 2 m3 gorma,Bara splæsa í lækkunarsett og málið steindautt.