Page 1 of 1
bensínlykt

Posted:
Tue 27. Apr 2010 20:51
by MVJ
langar að spyrja ykkur bmw snillingana , ég er með bmw og það er alltaf svoldið mikið bensín lykt af honum sérstaklega þegar ég er að keyra og opna gluggann þá finn ég alveg megna bensílykt vitið nokkuð hvað þetta er ?? svo er líka svoldið mikil bensín lykt þegar ég er nýbúinn að keyra og búinn að drepa á honum vitiði nokkuð hvað ég get gert?? :/ með von um svör MVJ
Re: bensínlykt

Posted:
Tue 27. Apr 2010 20:53
by ömmudriver
Hvernig BMW er þetta?
Re: bensínlykt

Posted:
Tue 27. Apr 2010 20:57
by gulli
Myndi halda að það væri eitthver staðar gat á bensín röri/slöngu hja þér, geturðu ekki sett hann á lyftu eitthver staðar og ath það ?
Re: bensínlykt

Posted:
Tue 27. Apr 2010 21:06
by BirkirB
Gæti líka vantað lok á öndunarrör fyrir tankinn...
edit...
í e36 þeas...
Re: bensínlykt

Posted:
Tue 27. Apr 2010 21:12
by MVJ
já þetta er e36 316
Re: bensínlykt

Posted:
Wed 28. Apr 2010 00:22
by ömmudriver
Finnur þú þessa lykt alltaf þegar þú ert að keyra eða þegar þú tekur beygjur eða kannski þegar bensíntankurinn er fullur af bensíni?
Re: bensínlykt

Posted:
Wed 28. Apr 2010 07:11
by MVJ
já finn hana þegar hann er fullur þá er eins og hann leki bensíni var að kíkja undir hann áðan ,hvað ætli þetta sé gat einhverstaðar ofarlega á tanknum eða ?
Re: bensínlykt

Posted:
Wed 28. Apr 2010 12:33
by ömmudriver
MVJ wrote:já finn hana þegar hann er fullur þá er eins og hann leki bensíni var að kíkja undir hann áðan ,hvað ætli þetta sé gat einhverstaðar ofarlega á tanknum eða ?
Getur verið að lokið ofan á tanknum sé laust eða öndunin á tanknum í ólagi.
Þú ættir að geta lyft upp sessunni á afturbekknum og þar ætti að vera 1-2 svort lok undir, opnaðu þau og þá áttu að sjá ofan á tankinn og vonandi sérðu hvað er að.