bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
hvað er þetta gráa á sílsunum á bmw https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=4391 |
Page 1 of 1 |
Author: | spurning [ Thu 05. Feb 2004 20:26 ] |
Post subject: | hvað er þetta gráa á sílsunum á bmw |
hvernig efni er þetta gráa sem er á sílsunum á bmw aðalega á 3 línunum og hvar getur maður keypt þetta? |
Author: | Moni [ Thu 05. Feb 2004 20:29 ] |
Post subject: | |
Þetta er einhver kvoða sem harnar á þessu, þetta á að vera held ég grjótbarnings vörn eða eitthvað... |
Author: | spurning [ Thu 05. Feb 2004 20:41 ] |
Post subject: | |
oki en þetta er byrjað að ryðga hjá mér inn undir brettunum veistu hvar ég get keypt þetta efni eða er bara alveg eins gott að setja grunn á þetta sem er svipað grár? |
Author: | Moni [ Thu 05. Feb 2004 20:48 ] |
Post subject: | |
Á mínum fór þetta líka að ryðga og það þarf að vinna þetta vel undir, ég lét gera það á verkstæði, og hann sprautaði þessu aftur á... Hringdu bara á sprautuverkstæði eða í B&L og spurðu að því! Þetta ryðgar svona á flestu E36 bimmum |
Author: | spurning [ Thu 05. Feb 2004 21:28 ] |
Post subject: | |
já ég ætla að gera það en veistu hvað það myndi kosta mig ? |
Author: | Moni [ Thu 05. Feb 2004 21:32 ] |
Post subject: | |
Ég man ekki hvað það kostaði, en það er ekkert svakalegt... |
Author: | Bjarki [ Thu 05. Feb 2004 22:04 ] |
Post subject: | |
Það væri mjög áhugavert að fá að vita hvaða efni þetta er eða hvaða efni er sambærilegt. Ég bað um svona efni í Bílanaust núna í janúar og fékk efni sem gefur þessa hömruðu áferð en það verður ekki næstum því jafn þykkt og ekki jafn góð hömruð áferð. Kannski á maður að taka mara nógu margar umferðir á þetta. En efnið sem ég fékk er svart en orignal efnið er hvítt/grátt og líkist kítti. Ég var bara að gera smá bráðabirgðaviðgerð á sílsunum á gamla góða e28! Ætla að taka þetta betur næsta sumar og þá verður maður að vera með rétta efnið. |
Author: | Ozeki [ Fri 06. Feb 2004 13:54 ] |
Post subject: | |
þegar ég vann við bílasprautanir hér á árum áður, hét þetta 'body coat' Ég hef oft sett svona á sílsa og neðstu hluta bíla við sprautanir og það næst alveg eins áferð eins og er orginal - t.d. á BMW Þetta sem ég notaði var vatnsþynnanlegt og málið er að hafa þetta rétt blandað og sprauta þessu svo á með þar til gerðri sprautu, þá verður þetta svona eins og orginal. Þar sem þetta er svona hamrað, þarf enga sérstaka aðstöðu (rykfrítt eða lofthreinsað) til þess að sprauta þessu á bílinn. Með vatnsþynnanlegu efni er ósköp lítil mengun af þessu þegar efninu er sprautað, og menn þurfa bara loftpressu og réttu sprautukönnuna til þess að setja þetta á bílinn hjá sér - ef menn eru á annað borð að gera eitthvað sjálfir í undirvinnu fyrir sprautun. Fæst örugglega í Orkunni - Gísla Jóns eða einhverjum af þessu bíla - málningarvöruverslunum. |
Author: | ///MR HUNG [ Fri 06. Feb 2004 19:19 ] |
Post subject: | |
Þegar ég var að vinna á sprautuverkstæðinu hjá B&L þá notuðum við bara grjótvörn og mixuðum svo gráan lit á þetta og þetta varð bara betra en nýtt og sást enginn munur og þetta er ekki flókið verk. |
Author: | spurning [ Sat 07. Feb 2004 01:03 ] |
Post subject: | |
þetta er svo andskoti þykkt. En hvað ætli það kosti að sprauta sílsana báðum megin svona gráa eða væri það kanski sniðugra að sprauta sílsana og stuðarana svarta hvað ætli verðmunurinn sé á því? |
Author: | Bjarki [ Sat 07. Feb 2004 04:13 ] |
Post subject: | |
328 touring wrote: Þegar ég var að vinna á sprautuverkstæðinu hjá B&L þá notuðum við bara grjótvörn og mixuðum svo gráan lit á þetta og þetta varð bara betra en nýtt og sást enginn munur og þetta er ekki flókið verk.
Hvernig grjótvörn notuðuð þið? Svarta drullu eða eitthvað annað? |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |