hvað er þetta gráa á sílsunum á bmw

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

hvað er þetta gráa á sílsunum á bmw

Postby spurning » Thu 05. Feb 2004 20:26

hvernig efni er þetta gráa sem er á sílsunum á bmw aðalega á 3 línunum og hvar getur maður keypt þetta?
spurning
Bannaður
 
Posts: 13
Joined: Sat 31. Jan 2004 01:24

Postby Moni » Thu 05. Feb 2004 20:29

Þetta er einhver kvoða sem harnar á þessu, þetta á að vera held ég grjótbarnings vörn eða eitthvað...
Gunnar Hans - Alltaf á löglegum hraða :twisted:
-BMW 318i E36 ´93 - Seldur...
-Honda Prelude 2,0 4th-Generation - Seldur...
-Honda Accord 2,0 EXE
User avatar
Moni
Getawaybílstjóri
 
Posts: 559
Joined: Wed 23. Oct 2002 11:33
Location: Garðabær

Postby spurning » Thu 05. Feb 2004 20:41

oki en þetta er byrjað að ryðga hjá mér inn undir brettunum veistu hvar ég get keypt þetta efni eða er bara alveg eins gott að setja grunn á þetta sem er svipað grár?
spurning
Bannaður
 
Posts: 13
Joined: Sat 31. Jan 2004 01:24

Postby Moni » Thu 05. Feb 2004 20:48

Á mínum fór þetta líka að ryðga og það þarf að vinna þetta vel undir, ég lét gera það á verkstæði, og hann sprautaði þessu aftur á...
Hringdu bara á sprautuverkstæði eða í B&L og spurðu að því!

Þetta ryðgar svona á flestu E36 bimmum
Gunnar Hans - Alltaf á löglegum hraða :twisted:
-BMW 318i E36 ´93 - Seldur...
-Honda Prelude 2,0 4th-Generation - Seldur...
-Honda Accord 2,0 EXE
User avatar
Moni
Getawaybílstjóri
 
Posts: 559
Joined: Wed 23. Oct 2002 11:33
Location: Garðabær

Postby spurning » Thu 05. Feb 2004 21:28

já ég ætla að gera það en veistu hvað það myndi kosta mig ?
spurning
Bannaður
 
Posts: 13
Joined: Sat 31. Jan 2004 01:24

Postby Moni » Thu 05. Feb 2004 21:32

Ég man ekki hvað það kostaði, en það er ekkert svakalegt...
Gunnar Hans - Alltaf á löglegum hraða :twisted:
-BMW 318i E36 ´93 - Seldur...
-Honda Prelude 2,0 4th-Generation - Seldur...
-Honda Accord 2,0 EXE
User avatar
Moni
Getawaybílstjóri
 
Posts: 559
Joined: Wed 23. Oct 2002 11:33
Location: Garðabær

Postby Bjarki » Thu 05. Feb 2004 22:04

Það væri mjög áhugavert að fá að vita hvaða efni þetta er eða hvaða efni er sambærilegt.
Ég bað um svona efni í Bílanaust núna í janúar og fékk efni sem gefur þessa hömruðu áferð en það verður ekki næstum því jafn þykkt og ekki jafn góð hömruð áferð. Kannski á maður að taka mara nógu margar umferðir á þetta. En efnið sem ég fékk er svart en orignal efnið er hvítt/grátt og líkist kítti. Ég var bara að gera smá bráðabirgðaviðgerð á sílsunum á gamla góða e28! Ætla að taka þetta betur næsta sumar og þá verður maður að vera með rétta efnið.
Bjarki
E39: 540iA '98
User avatar
Bjarki
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2492
Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Location: Reykjavík

Postby Ozeki » Fri 06. Feb 2004 13:54

þegar ég vann við bílasprautanir hér á árum áður, hét þetta 'body coat'
Ég hef oft sett svona á sílsa og neðstu hluta bíla við sprautanir og það næst alveg eins áferð eins og er orginal - t.d. á BMW

Þetta sem ég notaði var vatnsþynnanlegt og málið er að hafa þetta rétt blandað og sprauta þessu svo á með þar til gerðri sprautu, þá verður þetta svona eins og orginal. Þar sem þetta er svona hamrað, þarf enga sérstaka aðstöðu (rykfrítt eða lofthreinsað) til þess að sprauta þessu á bílinn. Með vatnsþynnanlegu efni er ósköp lítil mengun af þessu þegar efninu er sprautað, og menn þurfa bara loftpressu og réttu sprautukönnuna til þess að setja þetta á bílinn hjá sér - ef menn eru á annað borð að gera eitthvað sjálfir í undirvinnu fyrir sprautun.

Fæst örugglega í Orkunni - Gísla Jóns eða einhverjum af þessu bíla - málningarvöruverslunum.
User avatar
Ozeki
Kassabílstjóri
 
Posts: 167
Joined: Wed 16. Oct 2002 15:12
Location: Hér og Nú

Postby ///MR HUNG » Fri 06. Feb 2004 19:19

Þegar ég var að vinna á sprautuverkstæðinu hjá B&L þá notuðum við bara grjótvörn og mixuðum svo gráan lit á þetta og þetta varð bara betra en nýtt og sást enginn munur og þetta er ekki flókið verk.
330D E46 TOURING MTECH I
320D E46 TOURING
318I E46 (TI 3VOM)

E46 Í RIFI:
330XD TOURING
320D TOURING
318I SEDAN 98-04
323I coupe 99


E46/E39 ///M5 Í RIFI

S:8204469


Image
User avatar
///MR HUNG
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6493
Joined: Tue 31. Dec 2002 23:10
Location: Hrafnista

Postby spurning » Sat 07. Feb 2004 01:03

þetta er svo andskoti þykkt. En hvað ætli það kosti að sprauta sílsana báðum megin svona gráa eða væri það kanski sniðugra að sprauta sílsana og stuðarana svarta hvað ætli verðmunurinn sé á því?
spurning
Bannaður
 
Posts: 13
Joined: Sat 31. Jan 2004 01:24

Postby Bjarki » Sat 07. Feb 2004 04:13

328 touring wrote:Þegar ég var að vinna á sprautuverkstæðinu hjá B&L þá notuðum við bara grjótvörn og mixuðum svo gráan lit á þetta og þetta varð bara betra en nýtt og sást enginn munur og þetta er ekki flókið verk.

Hvernig grjótvörn notuðuð þið? Svarta drullu eða eitthvað annað?
Bjarki
E39: 540iA '98
User avatar
Bjarki
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2492
Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Location: Reykjavík


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 28 guests