by mofozzi » Tue 09. Mar 2010 19:38
Ég hef eina spuringu þar sem ég veit lítið um BMW. Myndi 320d Touring 2003 módel með common rail dieselvélinni (150 hö) teljast E46 ?? og ef þetta er E46 hvaða gatadeiling er á þessum bíl?? og svo þriðja, er hægt að setja undir þetta 18" án vandræða eða þarf þá að vera með lakkrísreim utanum felguna svo hún passi? kannski best að halda sig við 17" og koma smá dekki á felguna?? og að lokum, hvaða offset má mest vera á felgunni og hvaða breidd hentar best... ég veit ... algjör imbi hvað varðar þetta en maður lærir ekkert nema að spyrja.