Gangtruflanir í m50b25
Sælir, bara checka hvort einhver sé með hugmynd hvað sé að: Bíllinn búinn að vera rock solid þetta ár sem ég hef átt hann og svo er ég bara að keyra úr sjoppu og allt í einu droppar hann í snúningum og bensíngjöfin gerir ekki neitt og ég rétt kemst heim á ca. 10 km/klst. Svo ef ég kveiki á honum núna þá rokkar snúningsmælirinn bara og hann rétt heldur sér í gangi. Ef ég tek MAF úr sambandi og kveiki á honum þá gengur hann betur í 10 sek en byrjar svo aftur að rokka. Fyrst hélt ég að þetta væri lofthosan sem kemur á eftir MAF þar sem hún var orðin örlítið morkin og ekki þétt en það breytti litlu.
