Endalaust kok ! (tölva?)

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Endalaust kok ! (tölva?)

Postby DoriSig » Sun 21. Feb 2010 02:04

Sælir meðlimir,

Ég er búinn að eiga í endalausum vandræðum með svakalegt kok í bílnum hjá mér. ( í þessum bíl viewtopic.php?f=5&t=41331 )
Það sem ég er búinn að prófa og búinn að komast að:
Skipti um háspennukefli (einhvernveginn lagaðast það í svona 2 vikur en kom svo aftur.
Skipti um jörð (lagaðist i einn dag, kom aftur daginn eftir)
Fann engann vacum leka að viti, nokkrar smávægis morknar slöngur en er búinn að mixa það.
Svo komst ég að því að spíssinn á 1cyl var ekki að fá straum. (komst að því með því að prófa að svissa spíssum á cyl1 og cyl2) þegar ég gerði það þá var spíssinn á cyl1 ekki að fá straum, þannig að spíssinn var ekki ónýtur heldur að spíssinn er ekki að fá straum. (mældi tengið á cyl 1 og það kemur enginn straumur, þannig að ég svissaði spíssunum til að ath hvort að þetta væri ónýtur spíss)

Þetta verður einhvernveginn verra og verra. Núna er hann t.d byrjaður að missa algjörlega kraft í sek og svo kemur allt inn aftur og kokar alveg stanslaust á milli ( svo kemur bara svona : púff og bílinn tekur eitt stórt hökt og heldur svo áfram með kok í fyrirrúmi)

Ég var að velta fyrir mér hvort að ég gæti fengið tölvu lánaða til að athuga hvort að tölvan sé biluð.. og þannig útilokað það ef það er ekki hún. ( og ef það er hún, þá bara gott mál, fá nýja tölvu)

Þetta er bmw 525 93 módel og tölvunúmerið endar á " 405 " ...(0261200405)
BMW 525 E34 "93///M - í notkun
MMC Pajero "97 35" - Seldur
BMW 318 E36 "94 (litli surtur) - Seldur
BMW 525 E34 "93 - Seldur :(
Dodge Stratus ES "96 - Seldur
DoriSig
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 65
Joined: Sat 12. Jul 2008 00:11

Re: Endalaust kok ! (tölva?)

Postby gardara » Sun 21. Feb 2010 08:32

Nokkuð ónýtur maf?
Búinn að láta lesa af honum?
1974 BMW 1802
1994 BMW E36 332i sedan
2008 BMW E92 335i
2013 BMW F30 320d


Svezel wrote:Þú ert svo mikill bíla-hipster að það er ekki fyndið :lol:
User avatar
gardara
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5510
Joined: Sat 28. Jul 2007 14:28
Location: 108 Reykjavík


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 24 guests