Page 1 of 1

Spurning varðandi eitthvað sem ég skil ekki

PostPosted: Sun 14. Feb 2010 02:43
by Ingvarinn
Ég er mikið búin að vera pæla þegar maður sér t.d 325e og er auglýst sem ETA og 2,7L mótor hvað er það sem þetta er nákvæmlega það eina sem ég get séð er að það er ekki 2,5 en 2,7 er eitthvað meira á bakvið þetta en stærri mótor og hver er munurinn á þessum tveimur mótorum annað en rúmtak vélar ????


Með von um greina góð svör sem hægt er að skilja þetta er að pirra mig svolítið :evil: :bawl: :evil: :bawl: :evil: :bawl:

Re: Spurning varðandi eitthvað sem ég skil ekki

PostPosted: Sun 14. Feb 2010 09:51
by Alpina
325 eta er M20B27,, önnur sogrein

þetta er svona torque-motor með töluvert færri ps en M20B25 (oem 325)

menn kaupa þetta aðalega til breyta M20B25 í 2.7 L en það er bara notað blokk og stimplar+ sveifarás,, ekki heddið né kveikjukerfi eða soggrein

Mér finnstþetta grín

en í USA er þetta nokkuð vinsælt þar sem menn keyra langar vegalengdir og vélin púllar flott við lágan snúning

Re: Spurning varðandi eitthvað sem ég skil ekki

PostPosted: Sun 14. Feb 2010 10:08
by Einarsss
+ að þetta snýst í 5000rpm eða álíka og að þetta á að vera economy mótor

Re: Spurning varðandi eitthvað sem ég skil ekki

PostPosted: Sun 14. Feb 2010 11:23
by Stefan325i
Alpina wrote:325 eta er M20B27,, önnur sogrein

þetta er svona torque-motor með töluvert færri ps en M20B25 (oem 325)

menn kaupa þetta aðalega til breyta M20B25 í 2.7 L en það er bara notað blokk og stimplar+ sveifarás,, ekki heddið né kveikjukerfi eða soggrein

Mér finnstþetta grín

en í USA er þetta nokkuð vinsælt þar sem menn keyra langar vegalengdir og vélin púllar flott við lágan snúning



Í 2.7 stróker er notað Eta sveifarás og stangir en 325i hedd, blokk, stimplar, inntak og tölva.

Eta er 125 hö mótor sem var aðalega á ameríkumarkaði sem togaði samt 226nm sama og 171 hestafla M20b25, snerist bara í 5000, var eiðslugrannur mótor.

Re: Spurning varðandi eitthvað sem ég skil ekki

PostPosted: Sun 14. Feb 2010 11:42
by gstuning
Best er að nota 731 (323i , 320i) hedd á eta blokk, þá boltast það bara beint á
og svo 325i soggrein, tölvu og tilheyrandi.

þegar maður notar sveifarás og stangir og svo 325i rest, þá verður verulega lítil þjappa, og maður þarf að plana blokkina og svo fá sér stillanlegann tímagír.

2.8 breyting er auðveldari þar sem að maður þarf
2.8 sveifarás, 130mm stangir, 325i rest.