Page 1 of 1

Skrítið hljóð við framdekk

PostPosted: Sat 13. Feb 2010 12:08
by SteiniDJ
Sælir.

Ég er kannski að gera mál úr engu, en hvað með það. Svo er mál með vexti að þegar ég kveiki á bílnum í morgun kemur voðalega sérstakt "íííí" hljóð og lifði það í örfáar sekúndur og svo verður allt eðlilegt. Þegar ég er kominn niður í vinnu heyri ég "sss" hljóð hjá framdekkinu, farþegamegin, og dettur mér í hug að dekkið sé farið að leka. Nú er liðinn einn og hálfur tími og ekkert er farið að sjást á dekkinu, en hljóðið heldur áfram.

Þetta er afar keimlíkt því þegar loft lekur út um dekk, en svo virðist einfaldlega ekki vera. Ekki nema það sé í svo örlitlu magni að ekkert er farið að sjást á dekkinu.

Hvað mynduð þið giska á að þetta sé?

Re: Skrítið hljóð við framdekk

PostPosted: Sat 13. Feb 2010 16:23
by birkire
bíllinn með aircon ? tjekkaðu hvort það virkar þá

Re: Skrítið hljóð við framdekk

PostPosted: Sat 13. Feb 2010 19:06
by SteiniDJ
birkire wrote:bíllinn með aircon ? tjekkaðu hvort það virkar þá


Ég reyni það, takk.