Sælir.
Ég er kannski að gera mál úr engu, en hvað með það. Svo er mál með vexti að þegar ég kveiki á bílnum í morgun kemur voðalega sérstakt "íííí" hljóð og lifði það í örfáar sekúndur og svo verður allt eðlilegt. Þegar ég er kominn niður í vinnu heyri ég "sss" hljóð hjá framdekkinu, farþegamegin, og dettur mér í hug að dekkið sé farið að leka. Nú er liðinn einn og hálfur tími og ekkert er farið að sjást á dekkinu, en hljóðið heldur áfram.
Þetta er afar keimlíkt því þegar loft lekur út um dekk, en svo virðist einfaldlega ekki vera. Ekki nema það sé í svo örlitlu magni að ekkert er farið að sjást á dekkinu.
Hvað mynduð þið giska á að þetta sé?

