bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Ný Heddpakning.. https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=42966 |
Page 1 of 1 |
Author: | Papa.V [ Thu 11. Feb 2010 21:40 ] |
Post subject: | Ný Heddpakning.. |
Það vildi svo skemmtilega til að heddpakkningin fór í bílnum mínum í gær þannig að ég er ekki alveg búinn að kynna mer þetta 100%, en mig langaði til að spyrja ykkur fagmennina hvað væri skynsamlegast að gera, hvort það borgar sig eitthvað að skipta um heddpakkningu því eg veit að verðið á þessu gæti orðið frekar hátt. En ég talaði við einn bifvélavirkja og hann sagðist geta tekið þetta að sér að skipta um heddpakkningu fyrir 3500kall á tímann, er þetta ekki frekar tímafrek vinna? og hvað eru menn að taka fyrir svona lagað? |
Author: | Lindemann [ Thu 11. Feb 2010 21:44 ] |
Post subject: | Re: Ný Heddpakning.. |
3500 kall á tímann er ekkert mikið.............en ég myndi frekar reyna að fá fast verð í þetta. þetta er ekkert svo tímafrekt |
Author: | Alpina [ Thu 11. Feb 2010 22:46 ] |
Post subject: | Re: Ný Heddpakning.. |
Eina vitið er að taka alla ventla úr og þrýstiprófa heddið osfrv.. slípa upp sætin kostar eilítið meira en svoleiðis ætti að framkvæma þetta |
Author: | ValliB [ Fri 12. Feb 2010 11:20 ] |
Post subject: | Re: Ný Heddpakning.. |
Fyrst þetta er farið myndi ég frekar eyða aðeins meiri pening í að gera þetta almennilega eins og Sveinki bendir á Bara mín skoðun |
Author: | Papa.V [ Fri 12. Feb 2010 12:43 ] |
Post subject: | Re: Ný Heddpakning.. |
ja ef ég mundi fara í þessar framkvæmdir, væri ég þá ekki kominn með solid vél næstu árin? og mælið þið með einhverjum sem gæti tekið þetta að sér á góðum prís? |
Author: | Axel Jóhann [ Fri 12. Feb 2010 17:16 ] |
Post subject: | Re: Ný Heddpakning.. |
Prufaðu að henda PM á aronjarl eða jónka. ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |