Page 1 of 2
Sjálfskipting 3HP22 vs 4HP22

Posted:
Thu 11. Feb 2010 12:49
by srr
Jæja, nú fer að styttast í að ég skipti um vélina í 533iA.
Vélin sem er ofan í núna er úr E28 528iA '82, M30B28 og er með 4HP22 sjálfsskiptingu á.
Upprunalega vélin úr bílnum, M30B32, fylgdi með bílnum og er hún með áfastri skiptingu sem er 3HP22.
Ég veit hver munurinn er á skiptingunum, 3HP er þriggja þrepa en 4HP er fjögurra þrepa.
Spurningin mín er sú, hvort er gáfulegra að setja 3.2 lítra vélina ofan í með 3HP22 eins og bíllinn kom upprunalega, eða setja 4HP22 skiptinguna á?
Er ekki "betra" að vera með 4 þrep frekar en 3 þrep?
Re: Sjálfskipting 3HP22 vs 4HP22

Posted:
Thu 11. Feb 2010 14:04
by Hannsi
Persónulega mundi ég vilja 4 þrep frekar en 3, held líka að það sé meiri snerpa nema auðvitað að 3 þrepa skiptinginn sé án overdrive.
Re: Sjálfskipting 3HP22 vs 4HP22

Posted:
Thu 11. Feb 2010 19:53
by Stebbtronic
3hp22 er með 1:1 í þriðja en 4hp22 er með yfirgírun 1:0,8x í fjórða
Þeir bílar sem komu með 3hp22 komu líka yfirleitt með 1:3,07 drifi...
Re: Sjálfskipting 3HP22 vs 4HP22

Posted:
Thu 11. Feb 2010 20:03
by srr
Stebbtronic wrote:3hp22 er með 1:1 í þriðja en 4hp22 er með yfirgírun 1:0,8x í fjórða
Þeir bílar sem komu með 3hp22 komu líka yfirleitt með 1:3,07 drifi...
Bíllinn kom með 3HP22 og 3,25 drifi.
Það fer í hann 3,73 læst drif.
Re: Sjálfskipting 3HP22 vs 4HP22

Posted:
Thu 11. Feb 2010 20:07
by Logi
srr wrote:Stebbtronic wrote:3hp22 er með 1:1 í þriðja en 4hp22 er með yfirgírun 1:0,8x í fjórða
Þeir bílar sem komu með 3hp22 komu líka yfirleitt með 1:3,07 drifi...
Bíllinn kom með 3HP22 og 3,25 drifi.
Það fer í hann 3,73 læst drif.
Þá hlýtur 4 þrepa skiptingin að vera gáfulegri kostur útaf overdrive. Að vera með 1:1 og 3,73 drif er bara rugl snúningur @ 90 km/h...
Re: Sjálfskipting 3HP22 vs 4HP22

Posted:
Thu 11. Feb 2010 20:11
by srr
Ég hef ekki getað fundið út hvaða gear ratio er í 3HP22 né 4HP22.
Lumið þið nokkuð á þeim upplýsingum?
3HP22 skiptingin er úr E28 533iA '82 (M30B32)
og
4HP22 skiptingin er úr E28 528iA '82 (M30B28)
...ef það skiptir einhverju hvaðan þær koma

Re: Sjálfskipting 3HP22 vs 4HP22

Posted:
Thu 11. Feb 2010 20:13
by Alpina
held að allar skiptingarnar nema 5 gíra og 6/7 þrepa
séu með efsta þrep sem 1:1
Re: Sjálfskipting 3HP22 vs 4HP22

Posted:
Thu 11. Feb 2010 20:15
by Logi
Alpina wrote:held að allar skiptingarnar nema 5 gíra og 6/7 þrepa
séu með efsta þrep sem 1:1
Hvaða drifhlutfall var þá í auto E28 525i/528i þegar þeir eru að snúast ca. 2000rpm@100 kmh í drive?
Re: Sjálfskipting 3HP22 vs 4HP22

Posted:
Thu 11. Feb 2010 20:17
by Alpina
Logi wrote:Alpina wrote:held að allar skiptingarnar nema 5 gíra og 6/7 þrepa
séu með efsta þrep sem 1:1
Hvaða drifhlutfall var þá í auto E28 525i/528i þegar þeir eru að snúast ca. 2000rpm@100 kmh í drive?
Gæti verið 3.25 eða 3.07
oem 3.73 er ca 2600rpm 100km M20B25 E30
Re: Sjálfskipting 3HP22 vs 4HP22

Posted:
Thu 11. Feb 2010 20:18
by Logi
Alpina wrote:Logi wrote:Alpina wrote:held að allar skiptingarnar nema 5 gíra og 6/7 þrepa
séu með efsta þrep sem 1:1
Hvaða drifhlutfall var þá í auto E28 525i/528i þegar þeir eru að snúast ca. 2000rpm@100 kmh í drive?
Gæti verið 3.25 eða 3.07
oem 3.73 er ca 2600rpm 100km M20B25 E30
Já og þá er 5 gír 0,8eitthvað...
Re: Sjálfskipting 3HP22 vs 4HP22

Posted:
Thu 11. Feb 2010 20:19
by srr
Logi wrote:Alpina wrote:held að allar skiptingarnar nema 5 gíra og 6/7 þrepa
séu með efsta þrep sem 1:1
Hvaða drifhlutfall var þá í auto E28 525i/528i þegar þeir eru að snúast ca. 2000rpm@100 kmh í drive?
Þetta drif sem ég ætla setja í hann, 3.73LSD, kom úr 528iA '82 E28, sama bíl og 4HP22 skiptingin.
Svo segir allavega fyrri eigandi og hann reif þennan 528iA bíl sjálfur.
Re: Sjálfskipting 3HP22 vs 4HP22

Posted:
Thu 11. Feb 2010 20:20
by Alpina
Logi wrote:Já og þá er 5 gír 0,8eitthvað...

Re: Sjálfskipting 3HP22 vs 4HP22

Posted:
Thu 11. Feb 2010 20:45
by Lindemann
4hp22 dregur alveg nóg úr snerpunni á þessu................3hp22 væri alveg dauðinn!
Re: Sjálfskipting 3HP22 vs 4HP22

Posted:
Fri 12. Feb 2010 00:39
by saemi
ALDREI í lífinu setja 3hp skiptingu í bílinn.
Hef keyrt svona í E28 og E23, þetta er alveg mega vonlaust. 4hp22 er þó skömminni skárra!
Re: Sjálfskipting 3HP22 vs 4HP22

Posted:
Fri 12. Feb 2010 01:36
by srr
saemi wrote:ALDREI í lífinu setja 3hp skiptingu í bílinn.
Hef keyrt svona í E28 og E23, þetta er alveg mega vonlaust. 4hp22 er þó skömminni skárra!
Hehe, ok

Eftir ýmsar vangaveltur og útreikninga á hlutföllum í skiptingum og drifum....
Þá sýnist mér allt stefna í að uppsetningin verði svona:
M30B32 vélin
4HP22 skiptingin
3,73 LSD drifið
Held það komi ágætlega út.