Page 1 of 1
Leki inní E39?

Posted:
Sun 07. Feb 2010 17:17
by Kristjan PGT
Er með E39 til umráða og teppið bílstjórameginn afturí er blautt. Ég er 99% viss um að þetta sé bara vatn
Er eitthvað þekkt dæmi með leka eða annað í þessum bílum sem lýsir sér svipað?
Re: Leki inní E39?

Posted:
Sun 07. Feb 2010 18:06
by Alpina
Gúmmi tappi neðan frá gæti verið orsök,, þeas hann vantar
Re: Leki inní E39?

Posted:
Sun 07. Feb 2010 19:00
by hjaltib
Alpina wrote:Gummi tappi neðan frá gæti verið orsök,, þeas hann vantar
Hver er þessi Gummi?

Re: Leki inní E39?

Posted:
Sun 07. Feb 2010 19:07
by Ampi
hjaltib wrote:Alpina wrote:Gummi tappi neðan frá gæti verið orsök,, þeas hann vantar
Hver er þessi Gummi?

Gummi Tappi ? þekkiru hann ekki ? pff leim

Re: Leki inní E39?

Posted:
Sun 07. Feb 2010 19:39
by x5power
ef það eru filmur í honum er það husanlega málið! filmararnir gánga yfirleitt ekki nógu vel
frá klæðningunni bakvið hurðarspjaldið og það veldur leka!
Re: Leki inní E39?

Posted:
Sun 07. Feb 2010 20:35
by Bartek
það getið lika verið af festinga fyrir litla glugan i afturhurdini er skemtir...
Re: Leki inní E39?

Posted:
Sun 07. Feb 2010 23:15
by Jón Ragnar
gæti verið hálfur opinn svali undir farþegasætinu..

Re: Leki inní E39?

Posted:
Mon 08. Feb 2010 07:26
by Danni
x5power wrote:ef það eru filmur í honum er það husanlega málið! filmararnir gánga yfirleitt ekki nógu vel
frá klæðningunni bakvið hurðarspjaldið og það veldur leka!
Þetta var akkurat málið í hægri afturhurðinni á E39 bílnum hjá mér. Myndaðist alltaf raki í teppinu þar alveg þangað til að ég tók hurðarspjaldið af og lagaði klæðninguna bakvið.
Re: Leki inní E39?

Posted:
Tue 09. Feb 2010 22:00
by totihs
Opnar hurðina þar sem vatnið er > losar hurðaspjald > límir aftur gráa foam spjaldið.
Ef þú veist ekki frá hvaða hurð vatnið kemur geturu opnað hurðirnar og látið vatn leka niður rúðuna og séð hvaða hurð lekur inn.
Þetta er oft útaf því að það er ekki nógu vel gengið frá hlutunum þegar er verið að filma.