Page 1 of 1

vatnskassa vandamál

PostPosted: Sat 31. Jan 2004 01:27
by spurning
hvað getur verið að ef vatn af vatnskassanum minnkar smátt og smátt en ég get ekki séð neinn vatnsleka undir bílnum þetta er bmw 3,20 árgerð 1997 getur verið að heddpakning sé að fara eða getur verið að kassinn dæli vatninu úr? er einhver hérna sem getur vinsamlegast sagt mér hvað getur verið að?

PostPosted: Sat 31. Jan 2004 01:29
by oskard
láttu ný fylgja hvernig BMW þetta er og hvaða árgerð.

PostPosted: Sat 31. Jan 2004 01:34
by spurning
þetta er árgerð 1997 3.20

PostPosted: Sat 31. Jan 2004 03:38
by bjahja
Kannast við svona svipað hjá mér, láttu endilega tjakka á þessu í b&l. Hjá mér var þetta vatnsdælan, vatnslás, vatnsláshús og náttúrulega einhverjar pakkningar og o-hringur sem var skipt um og þetta kostaði litla 37.909 kalla uppí bjéogell, með vinnu að sjálfsögðu (15000).
En mér finnst bara einhvernvegin betra að borga kannski aðeins meira fyrir að láta umboðið laga ;)

PostPosted: Sat 31. Jan 2004 18:10
by Jss
bjahja wrote:Kannast við svona svipað hjá mér, láttu endilega tjakka á þessu í b&l. Hjá mér var þetta vatnsdælan, vatnslás, vatnsláshús og náttúrulega einhverjar pakkningar og o-hringur sem var skipt um og þetta kostaði litla 37.909 kalla uppí bjéogell, með vinnu að sjálfsögðu (15000).
En mér finnst bara einhvernvegin betra að borga kannski aðeins meira fyrir að láta umboðið laga ;)


Ég verð nú reyndar að taka undir það, ekki bara útaf "tengslum" mínum þar þótt það hjálpi náttúrulega eitthvað til. :D

PostPosted: Sat 31. Jan 2004 19:24
by spurning
ég fór aðskoða þetta nánar þetta var slanga sem liggur frá vatnskassa ég þakka ykkur fyrir hjálpina :)