Zed III wrote:
Ég lenti í því að bensínmælirinn hjá mér fór í ruglið, lá oft bara á núllinu en átti það til að sveiflast á milli réttrar stöðu og að vera tómur. Þetta er svokallað wacky gauge syndrome.
Ég fékk ábendingu á bimmerforums að skella tveimur brúsum að bensínhreinsi á tankinn þegar hann væri fullur og það virðist hafa dugað hjá mér til að laga sambandið á milli flotholtsins og viðnámsins.
Þetta er amk í lagi hjá mér í dag og ef það eru fleiri með þetta vandamál er um að gera að testa þetta trikk. Spurning hverstu lengi þetta endist þó.
Ertu þá að tala um spíssahreinsir ?