bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Problem, get ekki endursett service ljósið fyrir bremsur E61 https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=42565 |
Page 1 of 1 |
Author: | Svessi [ Mon 25. Jan 2010 14:36 ] |
Post subject: | Problem, get ekki endursett service ljósið fyrir bremsur E61 |
EDIT NR. 2: Jæja, fundum loksins út að neminn var meira eyddur heldur en við héldum í fyrstu, tengin í nemanum voru farin í sundum, fengum nýjann nema hjá TB og þá gekk upp að endursetja service ljósið. -- Smá leiðindi í bílnum hjá pabba, BMW 525iA Touring ´05 E61 Einn af fremri bremsuborðunum eyðilagðist útaf steini eða einhverju rusli svo við ákváðum að skipta bara alveg um borðana að framan, þótt borðarnir ættu sirka 1/3-1/4 eftir eða um 15.000 km samkvæmt tölvunni. Neminn sjálfur sem gefur ljós í mælaboðrið var varla farið að sjást á, aðeins smá rispur, svo við létum hann bara vera. Svo ætlaði ég að resetja service ljósið í bílnum, þannig að það kæmi að það væru nýjir bremsuborðar í bílnum. Það voru 15 þús km eftir, en eftir að ég reyndi að resetja þá kemur núna eins og hann sé kominn 15 þús km yfir eyðslu og kemur alltaf tilkynning í miðjuskjárinn þegar maður startar að maður verði að fara strax í BMW dealer og láta skipta um bremsuborðana að framan. Þegar maður fer inn í systemið til að resetja töluna þá kemur að það sé -15000km svo heldur maður takkanum inni til að resetja og þá kemur ---- og svo kemur bara aftur -15000km og dettur útúr service reset stillingunni. Svo er logar bremsuljósið í mælaboðinu núna standslaust. Vona að það skilji mig einhver hérna hvað ég á við. Er einhver möguleiki á því að ég verði að taka bremsuborðanemann úr sambandi og setja hann aftur í samband eða eitthvað álíka. Eða er kominn upp einhver error og verð ég að setja bílinn í tölvu? Please ef einhver getur gefið mér ráð. EDIT: Málið var að innri klossinn bílstjóra megin byrjaði að skrapa bremsudiskinn að innan, byrjaði bara allt í einu og virkaði eins og það væri komið járn í járn þegar maður keyrði. Ég var að keyra bílinn þegar þetta byrjar og fer bara beint heim sem voru sirka 2 km svo diskurinn sjálfur skemmdist ekkert. Samkvæmt service hlutanum í bílnum áttu klossarnir eftir um 15.000 km. Við setjum nýja klossa í bílinn og skiptum um alveg að framan, já, öll fjögur stykkin, vorum ekkert að skipta um nemann því hann virtist alveg vera í lagi. Svo ætlaði ég að resetja service ljósið og þá kom allt í einu -15.000km og ég get ekki lagað það eins og sést í videoinu hérna sem ég bjó til: Verðið að fyrirgefa gæðin, tók þetta upp á gamla digital myndavél. |
Author: | ömmudriver [ Mon 25. Jan 2010 17:34 ] |
Post subject: | Re: Problem, get ekki endursett service ljósið fyrir bremsur E61 |
Skiptir þú ekki líka um KLOSSANA farþegamegin að framan? Ef svo er er þá ekki bara málið að splæsa í nýjan skynjara? |
Author: | JonHrafn [ Mon 25. Jan 2010 18:14 ] |
Post subject: | Re: Problem, get ekki endursett service ljósið fyrir bremsur E61 |
Ég tók skynjaran nú bara úr sambandi hjá mér af klossanum, loopaði og strappaði hann fastan :þ |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |