Ég er að fara að skipta um bensíndælu á litla þar sem bensínhæðarmælirinn er í ruglinu hjá mér (varð bensínlaus á sæbrautinni og alles). Ég varð að preppa notuðu dæluna sem ég fékk en á henni voru bensínslöngurnar orðnar mjög harðar og frekar eftitt að ná þeim af dælunni.
Þar sem maður er nú að djöflast í bensíni, er óætt að nota hitabyssu til að mykja slöngurnar til að eiga auðveldara með að ná þeim af eða er eitthvað annað trikk sem ég ætti að nota ?




