bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

hitavandamál í m20b20 í e34
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=42505
Page 1 of 1

Author:  takecover [ Thu 21. Jan 2010 23:26 ]
Post subject:  hitavandamál í m20b20 í e34

þannig er mál með vexti að ég er með bmw e34 520ia sem er með m20b20 vél, sem er að ofhita sig.

þetta lýsir sér þannig að hann fer upp í eðlilegan vinslu hita og stopar þar í smá stund og heldur sýðan áfram að hita sig. eftir að ég skipti um vatnlásinn lét ég hann ganga í 20-30 minn inn í skúr og þá hélt hann sér í réttum hita og svo þegar ég kem daginn eftir og ætla að halda áfram og set hann í gang og læt hann ganga þá fer hann aftur að hita sig. :evil:

helst vesenið með þetta er-
get ekki séð að hann séð að leka vatni.
er búinn að skipta um vatnslás.
er búinn að skola út úr vantskassanum og hann er í góðu lagi.
get ekki séð að það sé vatn í óliunni, eða ólía í vatninu

hef ekki nóga góða kunnátti til að loft tæma kerfið er samt búinn að gera mitt besta við þetta allt er að verða gráhærður á þessu. :bawl:

öllar hugmyndir eru vel þegnar

Author:  Einarsss [ Fri 22. Jan 2010 08:26 ]
Post subject:  Re: hitavandamál í m20b20 í e34

þarftu ekki að fylla aftur á hann eftir að þú lést hann ganga í 20 mín?

Author:  Stebbtronic [ Fri 22. Jan 2010 11:42 ]
Post subject:  Re: hitavandamál í m20b20 í e34

Kemur kalt úr miðstöðinni þegar hann er kominn uppí keyrsluhitastig?
Ertu 100% að vatnslásinn hafi snúið rétt?

Author:  takecover [ Fri 22. Jan 2010 12:18 ]
Post subject:  Re: hitavandamál í m20b20 í e34

vatnlásinn snýr rétt það er ekki hægt að loka honum aftur nema á einn veginn. og miðstöðinn virkar ekki eftir að ég skipti um innréttingu það hefur eitthvað plugg dottið úr sambandi eða gleymst að tengja fer í að laga það á mánudaginn.
hvernig er annars hægt að tékka hvort að vatnsdælan virki og hvernig eru þessar vélar loft tæmdar

Author:  Einarsss [ Fri 22. Jan 2010 13:19 ]
Post subject:  Re: hitavandamál í m20b20 í e34

Það er bolti ofan á vatnsláshúsinu sem þú losar og lætur bílinn ganga .. þegar loft hættir að frusast út og bara vökvi rennur þá skrúfaru fyrir.

Gætir þurft að gera þetta nokkrum sinnum, og hafðu auga með hitanum.. ef hann fer mikið yfir þá drepir þú á bílnum og kælir hann aðeins og heldur áfram .. eins að passa að það sé nóg á forðabúrinu.

Líka fínt ráð að hækka bílinn að framan á meðan þú ert að þessu.

Author:  ingo_GT [ Fri 22. Jan 2010 19:58 ]
Post subject:  Re: hitavandamál í m20b20 í e34

einarsss wrote:
Það er bolti ofan á vatnsláshúsinu sem þú losar og lætur bílinn ganga .. þegar loft hættir að frusast út og bara vökvi rennur þá skrúfaru fyrir.

Gætir þurft að gera þetta nokkrum sinnum, og hafðu auga með hitanum.. ef hann fer mikið yfir þá drepir þú á bílnum og kælir hann aðeins og heldur áfram .. eins að passa að það sé nóg á forðabúrinu.

Líka fínt ráð að hækka bílinn að framan á meðan þú ert að þessu.


Og hafa miðstöðinna stilta á heita og helst með fullan blást.

ég hef alltaf gert þetta svona og hefur virkað vel hinga til :)

Author:  Axel Jóhann [ Fri 22. Jan 2010 21:03 ]
Post subject:  Re: hitavandamál í m20b20 í e34

ATH þetta er E34 og þá er lofttæmingartappi á vatnskassanum sem þarf að nota til að lofttæma! :thup:

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/