Page 1 of 1

Bilaður rofi í afturhlera á X5

PostPosted: Mon 18. Jan 2010 22:29
by JonHrafn
Pabbi er með x5 3.0d 2003. Fyrir rúmlega 2 árum skipti bogl um rofastykkið í afturhleranum því hann var að opnast í tíma og ótíma. Nú er þetta komið aftur, þannig að ég var að pæla hvort einhver ykkar hafi fundið upp á leið til þess að laga þetta stykki svo það þurfi ekki að skipta því öllu út aftur.

Það er sama vesen t.d. með afturhlerana á e46 touring.

Re: Bilaður rofi í afturhlera á X5

PostPosted: Mon 18. Jan 2010 23:30
by slapi
Það er voðalega erfitt að eiga við þetta því þessi listi er allur bræddur saman , en það sem virðist gerast er að fólk er að nota takkann sjálfan sem handfang og ýta því alltof fast á hann og hann má ekki við því , ég myndi láta kallinn kaupa nýjan grunnaðann og láta gluða yfir hann og setja hann á , þetta kostar venjulega ekki það mikið.