Page 1 of 1

Kveikju dæmi

PostPosted: Wed 28. Jan 2004 00:41
by O.Johnson
Er allt í lagi að þrífa svona með vatni og sápu ? Þetta er nefninlega virkilega skítugt.
Image

PostPosted: Wed 28. Jan 2004 00:43
by GHR
Notaðu frekar þynnir :!: En ef pólarnir eru orðnir lélegir þá mæli ég hiklaust með nýju kveikjuloki..... finnur hrikalega mikinn mun ef lokið og hamarinn er ónýtur

PostPosted: Wed 28. Jan 2004 00:46
by O.Johnson
GHR wrote:Notaðu frekar þynnir :!: En ef pólarnir eru orðnir lélegir þá mæli ég hiklaust með nýju kveikjuloki..... finnur hrikalega mikinn mun ef lokið og hamarinn er ónýtur


Ég er sko að reyna að fá að vita hvort að þetta má blotna. Hvernig veit ég hvort lokið eða hamarinn sé bilaður ???

PostPosted: Wed 28. Jan 2004 00:50
by GHR
Þetta má alveg blotna ef þú leyfir þessu að þorna alveg áður en þú setur lokið aftur í..... Mæli samt ekki með nenni sápu :roll:

Þú sérð strax hvort pólarnir séu lélegir, þeir verða brunnir og svartir. Eins með pólana á hamrinum.

Geturu ekki bara hirt þetta úr vélinni sem Frikki er að selja (vélin úr gamla mínum.....) Ég keypti allt nýtt í þetta þegar ég átti bílinn svo þetta á að vera í 90% ástandi..... Lokið er nefnilega helv... dýrt (minnir 7þús kall)