Page 1 of 1

Alternator farinn?

PostPosted: Sun 13. Dec 2009 14:45
by iar
Sælir.

Er að velta fyrir mér hvort alternatorinn hjá mér sé farinn í Króknum (E30 318i) eða hvort ég sé að mæla eitthvað vitlaust.

Er með nýhlaðið batterý og það mælist fínt 12.8V á milli pólana. Svo þegar ég set bílinn í gang og mæli á milli pólana mælist aldrei meira en rúm 11V á snúningi og miklu lægra (7-8V) í hægagangi.

Er ég að gera eitthvað rangt við að mæla eða ætli alternatorinn sé farinn?

Re: Alternator farinn?

PostPosted: Sun 13. Dec 2009 14:47
by dabbiso0
léleg jörð? anyone?

Re: Alternator farinn?

PostPosted: Sun 13. Dec 2009 15:48
by crashed
hugsanlegt að kolinn séu búinn hjá þér. sínir hann hleðsluljósið þegar hann er í gangi

Re: Alternator farinn?

PostPosted: Sun 13. Dec 2009 17:04
by iar
crashed wrote:hugsanlegt að kolinn séu búinn hjá þér. sínir hann hleðsluljósið þegar hann er í gangi


Nei það logar ekki en logar þegar ég svissa á þannig að peran er ekki farin. :-)

Re: Alternator farinn?

PostPosted: Mon 14. Dec 2009 19:11
by Einari
Þú átt að mæla rúmlega 14V á milli póla á rafgeyminum þegar bíllinn er að hlaða. :)

Re: Alternator farinn?

PostPosted: Mon 14. Dec 2009 21:41
by iar
Einari wrote:Þú átt að mæla rúmlega 14V á milli póla á rafgeyminum þegar bíllinn er að hlaða. :)


Hélt það einmitt, ca. 13.5-14.5V. :-( Er nokkuð hægt að mæla þetta vitlaust? Þarf nokkuð að setja eitthvað álag, útvarp, miðstöð etc. á fullt á meðan er mælt? Fæ fín 12.8V með dautt á bílnum en í gangi 7-8V (hægagangur) upp í rúm 11V á hærri snúning.

Re: Alternator farinn?

PostPosted: Mon 14. Dec 2009 21:52
by Einarsss
pottþétt ekki næg hleðsla .. en það er nú auðvelt að rífa alternator úr e30 ;)

Re: Alternator farinn?

PostPosted: Tue 15. Dec 2009 19:12
by Axel Jóhann
12,8V er bara spennan á rafgeyminum, ég á svona alternator handa þér. ;)

Re: Alternator farinn?

PostPosted: Tue 15. Dec 2009 22:20
by jens
Pottþétt enginn hleðsla, á að fara í 14.8 volt, annað hvort farin díóðubrúin eða kol/spennustillir búinn.

Re: Alternator farinn?

PostPosted: Sat 19. Dec 2009 14:22
by iar
Smá update á þetta.

Ég prófaði að strekka aðeins á reiminni og hann er núna farinn að mæla fínt í kringum 14V. :oops: :lol:

Re: Alternator farinn?

PostPosted: Mon 21. Dec 2009 23:02
by Dr. E31
Hehehe :D