Sælir.
Er að velta fyrir mér hvort alternatorinn hjá mér sé farinn í Króknum (E30 318i) eða hvort ég sé að mæla eitthvað vitlaust.
Er með nýhlaðið batterý og það mælist fínt 12.8V á milli pólana. Svo þegar ég set bílinn í gang og mæli á milli pólana mælist aldrei meira en rúm 11V á snúningi og miklu lægra (7-8V) í hægagangi.
Er ég að gera eitthvað rangt við að mæla eða ætli alternatorinn sé farinn?




