Page 1 of 2

BMW X5 - 4,4 - 2000 model - truntugangur/ljós í mælaborði

PostPosted: Thu 10. Dec 2009 23:32
by Stanky
Sælir.

Var að aka 3900 km um Evrópu á X5 - bíllinn alveg brilliant.

Var að aka í rosalega mikilli rigningu í Grikklandi (hitastigs munur var líka mikill, fór frá 1 gráðu upp í 14 gráður).

Allt í einu birtist hleðsluljósið í mælaborðinu (Rauða geymis ljósið).

Ég held áfram að keyra, vegna þess að bíllinn virkaði fínt (Það er ný upptekinn alternator í bílnum ca 4500km gamall).

Ég skrapp svo inn á bensínstöð með bílinn í gangi, kem út og þá er rosalegur truntugangur í bílnum og bensín pedallinn svarar ekki og öll ljósin í mælaborðinu loga (snúningurinn fór ekkert upp) - hann hinsvegar hreyfðist bara á insoginu bæði afturábak og áfram. En þegar ég setti í R (bakkgírinn) að þá hrökk hann afturábak, virkaði ekki beint smooth eins og það hefur alltaf verið.

Bíllinn fer til BMW dealer á morgun, en ég vill geta bent þeim eitthvað áleiðis, því ég vill fá bílinn í lag helst á morgun.

Það var ekkert athugavert við neitt við hegðun bílsins, fyrr en rauða geymis ljósið kom í mælaborðið.

Er líklegt að einhverjir tveir skynjarar fari úr sambandi í einu?

Gæti jörðin hafa aftengst?

Gætu einhverjir hlutir ekki fengið nægt rafmagn þegar geymis ljósið kom og þannig "skemmt út frá sér".

kv,
haukur

Re: BMW X5 - 4,4 - 2000 model.

PostPosted: Thu 10. Dec 2009 23:37
by ///MR HUNG
Mundi nú byrja á að kenna fína nýupptekna alternatornum um þetta.

Re: BMW X5 - 4,4 - 2000 model.

PostPosted: Thu 10. Dec 2009 23:40
by Stanky
///MR HUNG wrote:Mundi nú byrja á að kenna fína nýupptekna alternatornum um þetta.


Myndir þú kenna alternatornum um allt dótið?

Átti maður að stoppa að keyra þegar hleðsluljósið kom í borðið?

Re: BMW X5 - 4,4 - 2000 model - truntugangur/ljós í mælaborði

PostPosted: Thu 10. Dec 2009 23:44
by Benzari
Skot útí loftið, orginal rafgeymir sem er ónýtur. :idea:

Re: BMW X5 - 4,4 - 2000 model.

PostPosted: Thu 10. Dec 2009 23:54
by ///MR HUNG
Stanky wrote:
///MR HUNG wrote:Mundi nú byrja á að kenna fína nýupptekna alternatornum um þetta.


Myndir þú kenna alternatornum um allt dótið?

Átti maður að stoppa að keyra þegar hleðsluljósið kom í borðið?

Já það er nú vaninn því bíllinn gengur ekki hálfann snúning með ónýtann geymi né alterator.

Re: BMW X5 - 4,4 - 2000 model.

PostPosted: Thu 10. Dec 2009 23:59
by Stanky
///MR HUNG wrote:
Stanky wrote:
///MR HUNG wrote:Mundi nú byrja á að kenna fína nýupptekna alternatornum um þetta.


Myndir þú kenna alternatornum um allt dótið?

Átti maður að stoppa að keyra þegar hleðsluljósið kom í borðið?

Já það er nú vaninn því bíllinn gengur ekki hálfann snúning með ónýtann geymi né alterator.


Bíllinn gekk fínt þangað til ég var kominn á leiðarenda - þ.e. um leið og ég stoppaði.

Það vantaði ekkert afl, skiptingin var smooth og hann lét eins og allt var í lagi.

Re: BMW X5 - 4,4 - 2000 model - truntugangur/ljós í mælaborði

PostPosted: Fri 11. Dec 2009 00:07
by ///MR HUNG
En hversu lengi keyrðurðu með ljósið á?

Hann gengur á meðan hann tæmir út af geymirnum hægt og rólega.

Re: BMW X5 - 4,4 - 2000 model - truntugangur/ljós í mælaborði

PostPosted: Fri 11. Dec 2009 00:12
by Stanky
///MR HUNG wrote:En hversu lengi keyrðurðu með ljósið á?

Hann gengur á meðan hann tæmir út af geymirnum hægt og rólega.


20-30 mín max.

Re: BMW X5 - 4,4 - 2000 model - truntugangur/ljós í mælaborði

PostPosted: Fri 11. Dec 2009 00:42
by Axel Jóhann
Það er nóg, mömmu bíll var alveg eins, svo þegar það var farið ´tuaf geyminum byrjuðu öll ljós að loga og svo fór skiptingin í safe mode og varð mega asnaleg.



Þetta er alternatorinn.

Re: BMW X5 - 4,4 - 2000 model - truntugangur/ljós í mælaborði

PostPosted: Fri 11. Dec 2009 01:19
by Stanky
Axel Jóhann wrote:Það er nóg, mömmu bíll var alveg eins, svo þegar það var farið ´tuaf geyminum byrjuðu öll ljós að loga og svo fór skiptingin í safe mode og varð mega asnaleg.



Þetta er alternatorinn.


Takk fyrir svörin.

Var nóg að fixa altenatorinn og eyða út villumerkjum eða voru einhverjir skynjarar farnir ?

Re: BMW X5 - 4,4 - 2000 model - truntugangur/ljós í mælaborði

PostPosted: Fri 11. Dec 2009 11:10
by Axel Jóhann
Stanky wrote:
Axel Jóhann wrote:Það er nóg, mömmu bíll var alveg eins, svo þegar það var farið ´tuaf geyminum byrjuðu öll ljós að loga og svo fór skiptingin í safe mode og varð mega asnaleg.



Þetta er alternatorinn.


Takk fyrir svörin.

Var nóg að fixa altenatorinn og eyða út villumerkjum eða voru einhverjir skynjarar farnir ?





Eina sem ég gerði var að kaupa nýjann alternator hjá rafstillingu og hlaða geyminn upp öll ljós hurfu eftir að hann fékk að ganga í smástund.

Re: BMW X5 - 4,4 - 2000 model - truntugangur/ljós í mælaborði

PostPosted: Fri 11. Dec 2009 14:38
by Gunnar Þór
Alternatorinn fór í mínum - lýsti sér mjög svipað...

Re: BMW X5 - 4,4 - 2000 model - truntugangur/ljós í mælaborði

PostPosted: Mon 21. Dec 2009 23:10
by ///MR HUNG
Og hvernig fór þetta?

Re: BMW X5 - 4,4 - 2000 model - truntugangur/ljós í mælaborði

PostPosted: Tue 22. Dec 2009 14:00
by Geirinn
Altenatorinn fór... rót vandans var einhver barki sem var að sulla einhverjum viðbjóði á hann.

$$$€€€

Re: BMW X5 - 4,4 - 2000 model - truntugangur/ljós í mælaborði

PostPosted: Thu 24. Dec 2009 09:12
by slapi
Geirinn wrote:Altenatorinn fór... rót vandans var einhver barki sem var að sulla einhverjum viðbjóði á hann.

$$$€€€


Ha ?