skipta um vatnslás í e36 m52b25

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

skipta um vatnslás í e36 m52b25

Postby garnett91 » Fri 04. Dec 2009 01:57

soldil aulaspurning þar sem ég hef heyrt að þetta sé mjög auðvelt en veit einhver um einvhverjar leiðbeiningar um hvernig er best að gera þetta? :?
Jeep XJ 35" 1991 (MY093) leiktæki/daily
BMW e34 540IA 1994 (TO228) seldur :(
BMW e36 323I 1996 (NF832) seldur
Toyota Corolla 1995 XLI seldur
Subaru 1800 station 1991 seldur
BMW e36 316 M-tech 1998 seldur
Honda civic 1400cc 1998 seldur
User avatar
garnett91
Kassabílstjóri
 
Posts: 231
Joined: Sun 14. Sep 2008 02:21

Re: skipta um vatnslás í e36 m52b25

Postby skulzen » Fri 04. Dec 2009 14:39

rifur vatnskassan úr. bara til að komast betur að. svo fylgiru bara vatnshosonum og þú finnur vatnslásin rétt hjá dæluhúsinu. keepining it simple :lol:

strákar ef þið hafið betri lýsingu pleas join to help ! :D
skulzen
Kassabílstjóri
 
Posts: 152
Joined: Sun 04. Jan 2009 22:15

Re: skipta um vatnslás í e36 m52b25

Postby ValliFudd » Fri 04. Dec 2009 14:59

Þarf að rífa vatnskassann úr? Er svona vont að komast að vatnslásnum á m52?
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Re: skipta um vatnslás í e36 m52b25

Postby Einari » Fri 04. Dec 2009 22:41

Það þarf að minnsta kosti ekki að rífa hann úr þegar skipt er um vatnslás í e39 með sama mótor.

En annars er þetta frekar auðvelt, opnar kranann neðst á vatnskassanum bílstjóramegin til að hleypa vatninu af, ef þú ætlar að nota það aftur það er að segja, síðan þarftu eiginlega að taka viftuspaðann af, annaðhvort með kúplingunni (þarft 32mm opinn lykil og hamar til þess, kúplingin er skrúfuð uppá vatnsdæluna með öfugum gengjum) eða þá að losa bara allenboltana þrjá sem halda spaðanum á kúplingunni.
Síðan losaru vatnshosurnar báðar af vatnsláshúsinu, og losar boltana fjóra sem halda því, þarft að losa efri boltann í hífieyranu líka og taka það frá til að ná húsinu. Síðan tekuru húsið bara af og skiptir um vatnslás, gott að skipta um pakkninguna á vatnsláshúsinu líka.
Síðan seturu þetta bara saman aftur, passar bara að þrífa vel undir pakkningunni og muna að vatnslásinn fer fyrst inn í falsið og O-hringurinn á eftir.
Síðan þegar þú fyllir á vatnið aftur þá losaru lofttæmiskrúfuna sem er við hliðina á áfyllitappanum og hellir þangað til að það hættir að koma loft þar út. þá lokaru og setur bílinn í gang með miðstöðina á mesta hita og litlum blæstri, ferð síðan bara út að keyra og fylgist vel með hitamælinum og því hvort að miðstöðin hitnar ekki örugglega strax.

Gangi þér vel :)
Einari
Kassabílstjóri
 
Posts: 176
Joined: Mon 06. Mar 2006 19:18
Location: Akureyri

Re: skipta um vatnslás í e36 m52b25

Postby garnett91 » Sat 05. Dec 2009 20:01

takk fyrir kærlega
Jeep XJ 35" 1991 (MY093) leiktæki/daily
BMW e34 540IA 1994 (TO228) seldur :(
BMW e36 323I 1996 (NF832) seldur
Toyota Corolla 1995 XLI seldur
Subaru 1800 station 1991 seldur
BMW e36 316 M-tech 1998 seldur
Honda civic 1400cc 1998 seldur
User avatar
garnett91
Kassabílstjóri
 
Posts: 231
Joined: Sun 14. Sep 2008 02:21

Re: skipta um vatnslás í e36 m52b25

Postby Bandit79 » Mon 07. Dec 2009 01:22

U can do it!:)
BMW E34 525i Sedan 1991 *LSD*
BMW E36 320i Touring 1995 .. seldur
BMW E34 520i Touring 1994 .. seldur
BMW E36 320i 1997 Seldur .. í partamat í DK
BMW E39 525D Touring 2003 seldur ... snilldar tæki
BMW E34 525i 1992 seldur með mikilli eftirsjá
User avatar
Bandit79
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1064
Joined: Thu 12. May 2005 12:34
Location: Selfoss/Hveró


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 8 guests