Page 1 of 2

Af hverju er svona erfitt að gera við gírkassa ?

PostPosted: Tue 24. Nov 2009 13:07
by Zed III
Hef verið að glápa á Wheeler Dealer og í tveim þáttum hafa þeir verið í veseni með gírkassa. Fyrst í Porsche 911 og svo í M3.

Í báðum bílunum var einn gír crooked en þeir skiptu um gírkassa í báðum tilvikum (fyrir 1500 pund í 911 og svo 500 pund í M3). Það sem ég var að pæla er svona mikið mál að vaða inní þetta og skipta um einhver tannhjól og slíkt ?

Er meira mál að taka upp gírkassa í svona bílum en að taka upp vél eða er þetta svipað umstang ?

Re: Af hverju er svona erfitt að gera við gírkassa ?

PostPosted: Tue 24. Nov 2009 14:15
by jens
Já það er svolítið vesen. Lenti einu sinni í því að skemma syncrom fyrir 2 gír í 5 gíra sport kassa í E21, kassinn sjaldgæfur svo ákveðið var að láta laga hann. Fór með hann á "venjulegt" verkstæði sem gerði við allt og eftir 2 vikur náði ég í hann í pappakassa og fór með hann í Bílaumboðið sem þá var umboðsaðili BMW. Það þarf oft sérstök verkfæri og fl, það gekk reyndar ekki fyrr en í 3 tilraun hjá umboðinu svo kannski var ekki skrítið að hver sem er gæti ekki gert við hann.

Re: Af hverju er svona erfitt að gera við gírkassa ?

PostPosted: Tue 24. Nov 2009 14:16
by Zed III
fann þetta í sambandi við E30:

there are six clutch packs, a planetary gear and lots of springs etc


er sennilega ekki einfaldara á nýrri módelum.

Re: Af hverju er svona erfitt að gera við gírkassa ?

PostPosted: Tue 24. Nov 2009 15:07
by slapi
Zed III wrote:fann þetta í sambandi við E30:

there are six clutch packs, a planetary gear and lots of springs etc


er sennilega ekki einfaldara á nýrri módelum.


Þetta quote hjá þér á við sjálfskiptingar.

Re: Af hverju er svona erfitt að gera við gírkassa ?

PostPosted: Tue 24. Nov 2009 15:20
by Zed III
slapi wrote:
Zed III wrote:fann þetta í sambandi við E30:

there are six clutch packs, a planetary gear and lots of springs etc


er sennilega ekki einfaldara á nýrri módelum.


Þetta quote hjá þér á við sjálfskiptingar.


ahh rétt, fatta það núna :)

Re: Af hverju er svona erfitt að gera við gírkassa ?

PostPosted: Tue 24. Nov 2009 16:34
by birkire
Það er tímafrekt að gera við kassa og oftar en ekki erfitt og dýrt að redda varahlutum í þá. Svo þarf stundum sérverkfæri til að opna þá, en mundi ekki segja að það væri svakalega erfitt. Wheeler dealer hafa bara skipt um kassa því það væri ódýrara

Re: Af hverju er svona erfitt að gera við gírkassa ?

PostPosted: Tue 24. Nov 2009 17:33
by Axel Jóhann
Næsta plan er að taka gírkassa og rífa í spað hjá mér. :lol:

Re: Af hverju er svona erfitt að gera við gírkassa ?

PostPosted: Tue 24. Nov 2009 18:27
by Zed III
Axel Jóhann wrote:Næsta plan er að taka gírkassa og rífa í spað hjá mér. :lol:


úú, vona að þú verðir duglegur með myndavélina þegar þú ferð í það.

Re: Af hverju er svona erfitt að gera við gírkassa ?

PostPosted: Tue 24. Nov 2009 18:41
by crashed
hef tekið sjáflskiptingar í gegn úr bmw bens og subaru þetta er gerlegt en slatti vinna mikil þolinmæði og það erfiðasta er að muna hvar allt á að vera hehe og passa sig þegar sumt er sett saman gagnvart ohryngjum og fleiru að skemma ekki neinar pakningar við samsetningu og hafa mjög þrifalegt í kryngum sig en oft á tíðum er það ódýrara að kaupa nýjan kassa en að taka þá í gegn

Re: Af hverju er svona erfitt að gera við gírkassa ?

PostPosted: Tue 01. Dec 2009 22:58
by lacoste
Ég tók upp gírkassa í peugeot 106 Rallye. Skipti um annan gírinn og synchrome á öllum hinum og þetta var frekar flókið, samt alveg gerlegt. Passaðu þig bara þegar þu´rífur synchrome-ið af, þá skjótast gormar og einhver 1mm löng stykki útum ALLT. Var í viku að skríða eftir gólfinu og leita.

:lol:

Re: Af hverju er svona erfitt að gera við gírkassa ?

PostPosted: Tue 01. Dec 2009 23:03
by gunnar
Vá hvað svona gírkassa-ævintýri hljómar eitthvað ekki skemmtilegt :lol:

Re: Af hverju er svona erfitt að gera við gírkassa ?

PostPosted: Tue 01. Dec 2009 23:12
by sh4rk
Það er svolítið meira en að segja það að gera við svona gírkassa.
Ég reyndi sjálfur að gera við 6 gíra kassann minn og ég endaði með að fara með hann í mótor stillingu að láta gera við hann í mai og hann er þar enn

Re: Af hverju er svona erfitt að gera við gírkassa ?

PostPosted: Wed 02. Dec 2009 10:00
by ValliFudd
Besta atvik sem ég hef lent í varðandi kassa/skiptingar.

Mætti til Akureyrar á sandspyrnu. Var kominn norður svona 2-3 um nótt, fékk mér öl og fór í skúrarölt.

Þar lenti ég inn í skúr hjá vissum Cudu eiganda. Skiptingin var tóm, bara húsið og ekkert í því og allt sem var í henni útum allt borð. 6 tímar í mætingu á keppnisstað og þetta var eitt af MÖRGU sem eftir var.

HANN MÆTTI FYRSTUR! 8)

En þetta er jú skipting, ekki gírkassi. En bara smá off topic saga úr sveitinni ;)

Image

Re: Af hverju er svona erfitt að gera við gírkassa ?

PostPosted: Fri 04. Dec 2009 21:36
by slapi
ValliFudd wrote:Besta atvik sem ég hef lent í varðandi kassa/skiptingar.

Mætti til Akureyrar á sandspyrnu. Var kominn norður svona 2-3 um nótt, fékk mér öl og fór í skúrarölt.

Þar lenti ég inn í skúr hjá vissum Cudu eiganda. Skiptingin var tóm, bara húsið og ekkert í því og allt sem var í henni útum allt borð. 6 tímar í mætingu á keppnisstað og þetta var eitt af MÖRGU sem eftir var.

HANN MÆTTI FYRSTUR! 8)

En þetta er jú skipting, ekki gírkassi. En bara smá off topic saga úr sveitinni ;)

Image



Skipting er nefnilega frekar auðunnin ef menn hafa komið við eins skiptingu áður.
Menn sem eru eins og í kvartmílunni sem þurfa kannski að koma við þetta oftar en venjulegir notendur ættu að vera orðnir ansi lunknir að taka þetta í gegn.

Re: Af hverju er svona erfitt að gera við gírkassa ?

PostPosted: Fri 04. Dec 2009 23:14
by íbbi_
ég hef lært að laga það sem ég kann að laga með því að þurfa gera það, reyndi einu sinni að laga skiptingu úr 735, það gékk ekki,

hef voð'alega lítið átt við gírkassa. enda alltaf komist af þeirri niðurstöðu að það væri miklu minna mál að skipta þeim út,


stefni á að fara koma mér í að kryfja einn