Page 1 of 2
Rafgeymar

Posted:
Mon 23. Nov 2009 13:47
by srr
Kannski að einhver hérna geti frætt mig aðeins um rafgeyma.
Málið er að ég á 2 x rafgeyma sem eru slappir.
Ég á líka tvo hleðslutæki, annað er lítið og hleður minna inn á í einu, hitt er stærra og hleður meira inn í einu.
Málið er að hvorugt tækið virðist ná að hlaða þessa tvo geyma mína.
Hvernig get ég skorið úr um 100% að þessir geymar séu dauðir/fubar eða
geta kannski fagaðilar í rafgeymaþjónustum hlaðið þá einhvern veginn öðruvísi ?
Re: Rafgeymar

Posted:
Mon 23. Nov 2009 14:05
by IngóJP
Þarft að hafa þá í hleðslu í allaveganna 2 sólarhringa
Re: Rafgeymar

Posted:
Mon 23. Nov 2009 14:07
by srr
IngóJP wrote:Þarft að hafa þá í hleðslu í allaveganna 2 sólarhringa
Þá eingöngu til að ná þeim upp í normalt hleðsluhæft ástand?
Re: Rafgeymar

Posted:
Mon 23. Nov 2009 14:12
by IngóJP
srr wrote:IngóJP wrote:Þarft að hafa þá í hleðslu í allaveganna 2 sólarhringa
Þá eingöngu til að ná þeim upp í normalt hleðsluhæft ástand?
Já ég var með steindauða geyma var alltaf að hlaða í 8 tíma eða svo ekkert gekk með þá hafði þá svo í 2 sólarhringa og þeir náðu fullri hleðslu hjá mér og hafa ekkert verið að klikka
Re: Rafgeymar

Posted:
Mon 23. Nov 2009 14:13
by srr
Ok, ég verð að vera þolinmóðari greinilega
Ég prufa þetta, takk takk

Re: Rafgeymar

Posted:
Mon 23. Nov 2009 14:22
by Axel Jóhann
Getur líka rennt við á einhverju bílaverkstæði og athugað hvort þær geti ekki mælt geymana fyrir þig með svona álagsmæli.

Re: Rafgeymar

Posted:
Mon 23. Nov 2009 18:02
by srr
Axel Jóhann wrote:Getur líka rennt við á einhverju bílaverkstæði og athugað hvort þær geti ekki mælt geymana fyrir þig með svona álagsmæli.
Ég tékka á því ef tveggja daga hleðslan dugar ekki

Re: Rafgeymar

Posted:
Mon 23. Nov 2009 18:08
by crashed
til að hægt sé að nota álagsmælinn að þá þarf geimirinn að vera full hlaðin annars sínir hann falska mælingu eða einga og eftir 8 tíma hleðslu æti að vera komið nó á þá til að starta bíl annars eru þeir ónítir það sem ingójp sagði getur ekki staðist ekki nema hann hafi verið með eithvað fáránlegt hleðslu tæki sem hefur bara púlsað inná geimana. ég er með svona lítið hleslutæki frá olís og í manualinum af því stendur að það taki ca 8 tíma að full hlaða 65ah rafgeimi og eftir 30 min er hægt að starta bíl eftir hleðsluna
Re: Rafgeymar

Posted:
Mon 23. Nov 2009 18:27
by ViggiRS
Ef þetta er startgeymir þá verður hann ekki til friðs ef hann hefur náð að botnfalla, þá ná sér bara 70% upp aftur en ef þetta er neyslugeymir þá er séns að rífa hann upp. Myndi láta álagsmæla og láta mæla sýruna hvort það sé farin sella í honum....
Re: Rafgeymar

Posted:
Mon 23. Nov 2009 19:07
by Energy
Sæll, ég sé að þú ert staddur í keflavík ég á einn álagsmæli og þú getur kikt á mig fyrir 1 nammi:P
Re: Rafgeymar

Posted:
Tue 24. Nov 2009 13:04
by Geirinn
Energy wrote:Sæll, ég sé að þú ert staddur í keflavík ég á einn álagsmæli og þú getur kikt á mig fyrir 1 nammi:P
Má hann ekki frekar bara greiða þér 5 kr. fyrir ?
Re: Rafgeymar

Posted:
Tue 24. Nov 2009 13:39
by Andrynn
það gæti líka borgað sig að hafa hleðslutæki á í tvær vikur
Re: Rafgeymar

Posted:
Tue 24. Nov 2009 14:40
by srr
Andrynn wrote:það gæti líka borgað sig að hafa hleðslutæki á í tvær vikur
ha???
Re: Rafgeymar

Posted:
Tue 24. Nov 2009 15:02
by Zed III
srr wrote:Andrynn wrote:það gæti líka borgað sig að hafa hleðslutæki á í tvær vikur
ha???
Það gæti alveg borgað sig, um að gera að prófa í þágu vísinda.
Re: Rafgeymar

Posted:
Tue 24. Nov 2009 21:13
by Andrynn
srr wrote:Andrynn wrote:það gæti líka borgað sig að hafa hleðslutæki á í tvær vikur
ha???
já, það var kall hjá Skeljungi hérna á Akureyri sem sagði mér að gera þetta við geymi sem ég var með, mótorhjólarafgeymir, og var með lítið hleðslutæki á honum í 2-3 vikur og sá geymir hefur ekki klikkað síðan
