Page 1 of 2

Vantar ýmsar uppl í sambandi við e46

PostPosted: Wed 04. Nov 2009 09:25
by Skúli
Ég var að kaupa mér 2001 bmw e46 318ci og mig langar strax að fara að breyta og gera 8)

Ég er að spá í hvaða mótorar passa beint ofan í húddið? Mig langar helst í 2.5 lítra+
Væri flott ef þið vissum um stærri mótor sem passar beint ofan í húddið á þessum.

Hverjir eru með partasölu fyrir svona bíla eða eru að rífa? Mig vantar t.d. hægagangsskynjara og hitaskynjara fyrir viftu.

Er ekki gatadeilingin á felgunum 5x120?

Mig vantar líka glær stefnuljós í framljós og bretti, væri flott ef þið sem eigið svoleiðis hefðuð samband við mig.

Fyrirfram þakkir :thup:

Re: Vantar ýmsar uppl í sambandi við e46

PostPosted: Wed 04. Nov 2009 09:42
by Einarsss
afhverju keyptiru þér ekki e46 330i til að byrja með?

Re: Vantar ýmsar uppl í sambandi við e46

PostPosted: Wed 04. Nov 2009 09:48
by Skúli
Heheh fékk þennan bara á góðu verði í skiptum. Ég nefninlega rak augun í m20b25 á 50 þúsund kall nýupptekin og var svona aðeins að hugleiða ef hún passar ofan í, afhverju ekki að eyða smá klinki og setja hana ofan í og fá meiri kraft?

Re: Vantar ýmsar uppl í sambandi við e46

PostPosted: Wed 04. Nov 2009 09:50
by gunnar
Skúli wrote:Heheh fékk þennan bara á góðu verði í skiptum. Ég nefninlega rak augun í m20b25 á 50 þúsund kall nýupptekin og var svona aðeins að hugleiða ef hún passar ofan í, afhverju ekki að eyða smá klinki og setja hana ofan í og fá meiri kraft?

Af því að M20b25 eru hundgamlar vélar sem eiga ekkert heima í E46...

Og varðandi að "smella" einhverjum mótor þarna ofan í þá gengur þetta ekki alveg þannig fyrir sig.

Ef þig langar í meiri kraft þá kaupiru þér 328/330.

Re: Vantar ýmsar uppl í sambandi við e46

PostPosted: Wed 04. Nov 2009 10:14
by Einarsss
endilega skelltu m20 ofaní ... langar að sjá þann mótor ofaní e46 :lol:

Re: Vantar ýmsar uppl í sambandi við e46

PostPosted: Wed 04. Nov 2009 10:15
by hjaltib
Skúli wrote:Heheh fékk þennan bara á góðu verði í skiptum. Ég nefninlega rak augun í m20b25 á 50 þúsund kall nýupptekin og var svona aðeins að hugleiða ef hún passar ofan í, afhverju ekki að eyða smá klinki og setja hana ofan í og fá meiri kraft?

hahaha nýupptekin m20b25 á 50 þús, hvað var skift um kerti eða kertaþræði

Re: Vantar ýmsar uppl í sambandi við e46

PostPosted: Wed 04. Nov 2009 13:19
by Skúli
Heyrðu okei sleppum þessari vélaspurningu, ég er ekki bmw nördi þannig ekki skamma mig!
En þig megið alveg svara hinum spurningunum mínum ef þið vitið svör við þeim

Re: Vantar ýmsar uppl í sambandi við e46

PostPosted: Wed 04. Nov 2009 13:30
by doddi1
Skúli wrote:Heyrðu okei sleppum þessari vélaspurningu, ég er ekki bmw nördi þannig ekki skamma mig!
En þig megið alveg svara hinum spurningunum mínum ef þið vitið svör við þeim

gatadeilingin er 5x120

HK Racing eða nonnivett gætu átt eitthvað nýtilegt í þennan bíl, veit samt ekki.

Re: Vantar ýmsar uppl í sambandi við e46

PostPosted: Wed 04. Nov 2009 13:43
by Skúli
doddi1 wrote:

Takk kærlega fyrir það ;)

Re: Vantar ýmsar uppl í sambandi við e46

PostPosted: Wed 04. Nov 2009 13:43
by Aron Andrew
viewtopic.php?f=12&t=37552

Þarna finnurðu vélar og flest sem þig gæti vantað í e46

Re: Vantar ýmsar uppl í sambandi við e46

PostPosted: Wed 04. Nov 2009 13:56
by Skúli
Aron Andrew wrote:http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=12&t=37552

Þarna finnurðu vélar og flest sem þig gæti vantað í e46

Nice. Geturu bent mér á einhvern hérna á spjallinu eða sem þú þekkir sem getur lesið af bílnum hjá mér? Einhver skynjari farinn og þyrfti að vita hvaða skynjari það er

Re: Vantar ýmsar uppl í sambandi við e46

PostPosted: Wed 04. Nov 2009 13:59
by Zed III

Re: Vantar ýmsar uppl í sambandi við e46

PostPosted: Wed 04. Nov 2009 14:03
by Skúli

Takk fyrir þetta, smá munur á verði hjá bifreid.is og b&l eða 3500 og 12000 :lol:

Re: Vantar ýmsar uppl í sambandi við e46

PostPosted: Wed 04. Nov 2009 16:55
by IngóJP
Skil ekki hvað það er verið að væla um að e46 sé svo nýr bíll að það sé algjör þvæla að skipta um mótor í þeim.. Það er bara meira en að segja það að finna vélar í þessa bíla

Re: Vantar ýmsar uppl í sambandi við e46

PostPosted: Wed 04. Nov 2009 19:21
by Skúli
IngóJP wrote:Skil ekki hvað það er verið að væla um að e46 sé svo nýr bíll að það sé algjör þvæla að skipta um mótor í þeim.. Það er bara meira en að segja það að finna vélar í þessa bíla

Nákvæmlega. Ég er búinn að finna vél úr e46 323, er eitthvað vit í henni?