Page 1 of 1
missi afl og fæ ógang í m50b25

Posted:
Sun 01. Nov 2009 17:07
by Zed III
Bíllinn minn er kominn með einhvern ógang. Á það til að missa allt afl og drepst jafnvel á honum sama hvað maður djöflast á bensíngjöfinni.
Ef ég næ vélinni upp í háan snúning þá virðist þetta oftast skána í nokkrar mín.
Hvaða skynjarar geta verið í ruglinu ? Held að falskt loft geri ekki svona mikinn óskunda, en hver veit.
Þetta virkar ekki ósvipað því þegar tölvan fór í ruglið hjá mér, spurning nýja tölvan sé eitthvað að klikka.
Re: missi afl og fæ ógang í m50b25

Posted:
Sun 01. Nov 2009 17:21
by gstuning
Þetta er alveg týpískt dæmi um vacuum leka.
Re: missi afl og fæ ógang í m50b25

Posted:
Sun 01. Nov 2009 17:39
by Zed III
Cheers, tékka à því.
Brake and parts cleaner here I come.
Re: missi afl og fæ ógang í m50b25

Posted:
Sun 01. Nov 2009 20:03
by Zed III
og þetta var vacuum leki.
takk mr tuning
Re: missi afl og fæ ógang í m50b25

Posted:
Sun 01. Nov 2009 20:21
by iar
Zed III wrote:Cheers, tékka à því.
Brake and parts cleaner here I come.
Spyr sá sem ekki veit.. hvernig er það notað til að finna vacuum leika?

Re: missi afl og fæ ógang í m50b25

Posted:
Sun 01. Nov 2009 20:25
by gstuning
Þegar vélin sígur þetta inn þá breytist gangurinn því þessar vörur brenna í vélinni.
Auðvitað myndi smá vatn gera það sama.
Re: missi afl og fæ ógang í m50b25

Posted:
Sun 01. Nov 2009 20:29
by iar
gstuning wrote:Þegar vélin sígur þetta inn þá breytist gangurinn því þessar vörur brenna í vélinni.
Auðvitað myndi smá vatn gera það sama.
Ok.. sprautar semsagt hér og þar á hosur þar sem gætu verið lekar þar til gangurinn breytist, þá ertu búinn að finna lekann. Danke schön!

Re: missi afl og fæ ógang í m50b25

Posted:
Sun 01. Nov 2009 20:35
by Zed III
iar wrote:gstuning wrote:Þegar vélin sígur þetta inn þá breytist gangurinn því þessar vörur brenna í vélinni.
Auðvitað myndi smá vatn gera það sama.
Ok.. sprautar semsagt hér og þar á hosur þar sem gætu verið lekar þar til gangurinn breytist, þá ertu búinn að finna lekann. Danke schön!

nákvæmlega,
Þetta alveg þrælvirkar.