Page 1 of 1

Vantar aðstoð í E36 pælingum

PostPosted: Sat 24. Oct 2009 17:31
by gunnar
Mig vantar að vita nokkra hluti í sambandi við E36. Ágætt að athuga vitneskju kraftsmanna áður en ég fer að gramsa á netinu betur.

- Passar stóra OBC tölvan í bíl sem er með litlu OBC tölvuna? Það eru tvö plögg aftan á þeirri stóru en aðeins eitt á þeirri litlu. Ég fann ekki laust plögg í fljótu bragði þegar ég tók þetta í sundur.. Þarf sem sagt allt víralúmið með þessu?

- E36 sem er með loftkælda diska að aftan, hann getur sjálfsagt ekki notað einfalda diska?

- Er handbremsu-dótið það saman innan í diskunum á loftkældu bílunum og þeir sem eru með einfalt. Þ.e gæti ég notað handbremsu-mechanisman úr bílnum með einföldu diskana?

- Gírhnúinn á E36, er hann ekki festur eins og á E30? Þ.e.a.s bara pressaður ofan á skiptirinn? Næ nefnilega með engu móti skiptihnúðnum af partabílnum. Búinn að taka ansi hressilega á þessu.

Ekki meira í bili :lol:

Re: Vantar aðstoð í E36 pælingum

PostPosted: Sat 24. Oct 2009 18:14
by iar
gunnar wrote:- Gírhnúinn á E36, er hann ekki festur eins og á E30? Þ.e.a.s bara pressaður ofan á skiptirinn? Næ nefnilega með engu móti skiptihnúðnum af partabílnum. Búinn að taka ansi hressilega á þessu.

Jú, bara pressaður á og sama gildir og með aðra bíla: sleppa því að rota sig við að losa hann. :-) Mig minnir að ég hafi náð að nota hnéð á mér sem vogarás til að hjálpa til við að kippa honum af.

Re: Vantar aðstoð í E36 pælingum

PostPosted: Sat 24. Oct 2009 18:30
by gunnar
iar wrote:

Ég var einmitt með tvö stór skrúfjárn sem ég notaði sem vogarafl á milli handana á mér og rembdist á þessu eins og ég veit ekki hvað... Þetta vill bara ekki af :shock:

Er svona farin að gæla við hvort að einhver hafi sett smá kítti eða lím með þessu :lol: :lol:

Re: Vantar aðstoð í E36 pælingum

PostPosted: Sat 24. Oct 2009 18:47
by Dóri-
- Er handbremsu-dótið það saman innan í diskunum á loftkældu bílunum og þeir sem eru með einfalt. Þ.e gæti ég notað handbremsu-mechanisman úr bílnum með einföldu diskana?

þetta er það sama

Re: Vantar aðstoð í E36 pælingum

PostPosted: Sat 24. Oct 2009 19:16
by crashed
gunnar wrote:
iar wrote:
gunnar wrote:- Gírhnúinn á E36, er hann ekki festur eins og á E30? Þ.e.a.s bara pressaður ofan á skiptirinn? Næ nefnilega með engu móti skiptihnúðnum af partabílnum. Búinn að taka ansi hressilega á þessu.

Jú, bara pressaður á og sama gildir og með aðra bíla: sleppa því að rota sig við að losa hann. :-) Mig minnir að ég hafi náð að nota hnéð á mér sem vogarás til að hjálpa til við að kippa honum af.

Ég var einmitt með tvö stór skrúfjárn sem ég notaði sem vogarafl á milli handana á mér og rembdist á þessu eins og ég veit ekki hvað... Þetta vill bara ekki af :shock:

Er svona farin að gæla við hvort að einhver hafi sett smá kítti eða lím með þessu :lol: :lol:

handbremsu dæmið er það sama og á bílnum hjá mér að þá varð ég að rífa merkið af topnum og þar undir er skrúfa sem ég losaði og þá fór gírhnúðurinn af mjög auðveldlega veit reyndar ekki hvort hann hafi verið orginal eða ekki

Re: Vantar aðstoð í E36 pælingum

PostPosted: Tue 27. Oct 2009 10:08
by Höfuðpaurinn
gunnar wrote:- Passar stóra OBC tölvan í bíl sem er með litlu OBC tölvuna? Það eru tvö plögg aftan á þeirri stóru en aðeins eitt á þeirri litlu. Ég fann ekki laust plögg í fljótu bragði þegar ég tók þetta í sundur.. Þarf sem sagt allt víralúmið með þessu?

ég var nú einhverntímann búinn að finna lausn á þessu máli, en ef ég man rétt, þá þarftu eitthvað að mixa til að þetta gangi.

í E34 aftur á móti, þá þurfti ég að lóða kubb inn í stóru OBC til að fá allt til að virka í henni.

Re: Vantar aðstoð í E36 pælingum

PostPosted: Tue 27. Oct 2009 10:12
by Einarsss
smá OT en ég er að spá með "gongið" er það innbyggt í tölvurnar eða?

Re: Vantar aðstoð í E36 pælingum

PostPosted: Tue 27. Oct 2009 10:25
by gunnar
Höfuðpaurinn wrote:
gunnar wrote:- Passar stóra OBC tölvan í bíl sem er með litlu OBC tölvuna? Það eru tvö plögg aftan á þeirri stóru en aðeins eitt á þeirri litlu. Ég fann ekki laust plögg í fljótu bragði þegar ég tók þetta í sundur.. Þarf sem sagt allt víralúmið með þessu?

ég var nú einhverntímann búinn að finna lausn á þessu máli, en ef ég man rétt, þá þarftu eitthvað að mixa til að þetta gangi.

í E34 aftur á móti, þá þurfti ég að lóða kubb inn í stóru OBC til að fá allt til að virka í henni.

Já ég er búinn að vera lesa mér aðeins til um þetta og menn hafa verið að þurfa að víra allt í steik ef þeir hafa ekki haft þetta plögg fyrir í bílnum.

En þá er önnur pæling, ef maður er með partabíl sem er með þessu plöggi (og hafði þessa tölvu), ætli sé flókið að taka þann hluta kerfisins og færa yfir í annan bíl?

Re: Vantar aðstoð í E36 pælingum

PostPosted: Tue 27. Oct 2009 18:45
by iar
einarsss wrote:smá OT en ég er að spá með "gongið" er það innbyggt í tölvurnar eða?

http://www.bmwkraftur.is/spjall//viewtopic.php?f=1&t=23100 :lol:

Gongið í E36 er í innréttingunni fyrir neðan stýrið/ofan pedalana.