Page 1 of 1

2002 BMW X5 3.0 bensín bílstjórahurð opnast ekki að utan

PostPosted: Mon 12. Oct 2009 18:55
by Axel Jóhann
Þannig er mál með vexti að bílstjórahurðin á X5 hjá mömmu vill ekki opnast utanfrá, ég er búinn að kippa hurðaspjaldinu af og skoða þetta aðeins, og það er einn vír sem liggur niðurí læsingarmekkanóið frá hurðarhúninum og hann er ekki slitinn, hann er bara ekki nógu strekktur, veit einhver hérna hvort það sé hægt að kippa þessu úr og strekkja á vírnum eða hvort þetta sé eitthvað annað sem er farið.



Með von um góð svör Axel Jóhann Helgason.

Re: 2002 BMW X5 3.0 bensín bílstjórahurð opnast ekki að utan

PostPosted: Mon 12. Oct 2009 19:11
by Alpina
Axel Jóhann wrote:Þannig er mál með vexti að bílstjórahurðin á X5 hjá mömmu vill ekki opnast utanfrá, ég er búinn að kippa hurðaspjaldinu af og skoða þetta aðeins, og það er einn vír sem liggur niðurí læsingarmekkanóið frá hurðarhúninum og hann er ekki slitinn, hann er bara ekki nógu strekktur, veit einhver hérna hvort það sé hægt að kippa þessu úr og strekkja á vírnum eða hvort þetta sé eitthvað annað sem er farið.



Með von um góð svör Axel Jóhann Helgason.


Klárlega ekta spurning fyrir ,,,,, www.edalbilar.is

Re: 2002 BMW X5 3.0 bensín bílstjórahurð opnast ekki að utan

PostPosted: Mon 12. Oct 2009 21:09
by Axel Jóhann
Alpina wrote:
Axel Jóhann wrote:Þannig er mál með vexti að bílstjórahurðin á X5 hjá mömmu vill ekki opnast utanfrá, ég er búinn að kippa hurðaspjaldinu af og skoða þetta aðeins, og það er einn vír sem liggur niðurí læsingarmekkanóið frá hurðarhúninum og hann er ekki slitinn, hann er bara ekki nógu strekktur, veit einhver hérna hvort það sé hægt að kippa þessu úr og strekkja á vírnum eða hvort þetta sé eitthvað annað sem er farið.



Með von um góð svör Axel Jóhann Helgason.


Klárlega ekta spurning fyrir ,,,,, http://www.edalbilar.is





Já ætla hringja í þá á morgun, alltaf toppsímaþjónusta hjá þeim ólíkt öðrum stöðum sem svara manni bara ekki.

Re: 2002 BMW X5 3.0 bensín bílstjórahurð opnast ekki að utan

PostPosted: Mon 12. Oct 2009 22:52
by slapi
Ég skal reyna að spara þér símtalið.

Það sem gerist venjulega í þessu er að það teygist á barkanum það mikið að færslan verður ekki nægileg til að opna læsinguna.
Maður finnur þetta venjulega þegar maður tekur í ytra handfangið og það byrjar ekkert að taka í fyrr en um miðja færslu á húninum.
Venjulega er hægt að opna þessar hurðar með að rykkja hressilega í húninn.

En ef þetta er málið er einungis eitt í stöðunni , það er að skipta um barkann og hann er ekki hægt að fá nema með brakketinu og færslunni sem að ytra handfangið situr í og því er þetta blóðugt að pranga út fullt af þúsundköllum fyrir 3" barka en þetta er líklegast eina lausnin að fá nýtt brakket. Partanr endar á *43615 fyrir v/m og *43616 h/m ef ég man rétt.

Síðan er sterkur leikur að smyrja í nýja barkann því það vill frjósa í þessu , ekki láta gúmmíhettuna blekkja þig sem er á barkanum , það kemst vatn í þetta og það mun frjósa í þessu akkurat þegar það má ekki við því , á morgnanna á leiðinni í vinnuna og ekki hægt að loka hurðinni.

Best er að smyrja með sjálfskiptiolíu og láta barkann liggja í henni góðann tíma eða þrýsta henni í gegn með smurkönnu og slöngu.

Jæja ætla ekki að kasta of miklum upplýsingum út , maður verður að passa upp á þetta

Re: 2002 BMW X5 3.0 bensín bílstjórahurð opnast ekki að utan

PostPosted: Mon 12. Oct 2009 22:56
by arnibjorn
Góður Slapi!

Krafturinn ætti bara að ráða þig í vinnu við að svara öllu í "Tæknilegar umræður". Þú ert greinilega með þetta allt á hreinu :D

Re: 2002 BMW X5 3.0 bensín bílstjórahurð opnast ekki að utan

PostPosted: Tue 13. Oct 2009 08:02
by Alpina
arnibjorn wrote:Góður Slapi!

Krafturinn ætti bara að ráða þig í vinnu við að svara öllu í "Tæknilegar umræður". Þú ert greinilega með þetta allt á hreinu :D




SLAPI .. er starfsmaður EÐALBÍLA

Re: 2002 BMW X5 3.0 bensín bílstjórahurð opnast ekki að utan

PostPosted: Tue 13. Oct 2009 08:52
by arnibjorn
Alpina wrote:
arnibjorn wrote:Góður Slapi!

Krafturinn ætti bara að ráða þig í vinnu við að svara öllu í "Tæknilegar umræður". Þú ert greinilega með þetta allt á hreinu :D



SLAPI .. er starfsmaður EÐALBÍLA

Sveinbjörn... fyrstur með fréttirnar :D

Re: 2002 BMW X5 3.0 bensín bílstjórahurð opnast ekki að utan

PostPosted: Tue 13. Oct 2009 19:43
by Axel Jóhann
Takk fyrir svarið slapi, ég hringdi hinsvegar í dag í Jón hjá TB (X5power) og hann sagði nákvæmlega það sama, fékk handfangið með nýjum barka hjá honum á 16þús með kraftsafslætti. ;)

Re: 2002 BMW X5 3.0 bensín bílstjórahurð opnast ekki að utan

PostPosted: Tue 13. Oct 2009 23:38
by zazou
Er semsagt farið að frjósa á Íslandi :lol:
Gamli minn var stundum svona í frosti.

Re: 2002 BMW X5 3.0 bensín bílstjórahurð opnast ekki að utan

PostPosted: Wed 14. Oct 2009 13:00
by Axel Jóhann
zazou wrote:Er semsagt farið að frjósa á Íslandi :lol:
Gamli minn var stundum svona í frosti.




Það er meiraðsegja næstum mánuður síðan. :lol: