Ljósavandamál í E46

Posted:
Sun 11. Oct 2009 17:28
by Hreiðar
Í gær var ég að skipta um perur í bílnum mínum, ég tók fake angely eyes úr og setti
hvítar stöðuljósaperur. Eftir að ég gerði það þá kemur upp bilunarljós í mælaborðinu
mínum, semsagt, bíllinn segir að einhver ljós að framan séu ekki í lagi, mynd af svona
rauðum perum.
Þegar ég kveiki bara á stöðuljósunum þá kviknar líka á stefnuljósunum, þau blikka ekki,
þau eru bara kveikt, svona eins og er alltaf á amerískum týpum. Þegar ég kveiki svo á aðaljósunum
þá slökknar á stefnuljósunum og allt verður í lagi nema að bíllinn sýnir ennþá einhverja bilun í
framljósum, samkvæmt mælaborðinu.
Er einhver ljósagúru hérna sem gæti hjálpað mér? Er búinn að reyna allt til að koma þessu í lag án
árangurs. Vill helst ekki þurfa að fara með bílinn í TB.
kveðja, Hreiðar.
Re: Ljósavandamál í E46

Posted:
Sun 11. Oct 2009 18:45
by IngóJP
Þarf að fara í tölvu að eyða villunni
Re: Ljósavandamál í E46

Posted:
Sun 11. Oct 2009 20:25
by Hreiðar
IngóJP wrote:Þarf að fara í tölvu að eyða villunni
Já, en samt. Þegar ég kveiki á stöðuljósunum, þá verða stefnuljósin alltaf kveikt.
Hvernig get ég lagað það? Kaupa ný perustæði fyrir stefnuljósaperurnar? Gæti þetta
verið þau að klikka?
Re: Ljósavandamál í E46

Posted:
Sun 11. Oct 2009 20:37
by SteiniDJ
Hvernig fake angel eyes?
Ég tók stöðuljósaperurnar mínar út þegar ég setti angel eyes í og við það fara stefnuljósin að framan í gang ef ég set stöðuljósin á.
Re: Ljósavandamál í E46

Posted:
Sun 11. Oct 2009 20:39
by Hreiðar
SteiniDJ wrote:Hvernig fake angel eyes?
Ég tók stöðuljósaperurnar mínar út þegar ég setti angel eyes í og við það fara stefnuljósin að framan í gang ef ég set stöðuljósin á.
Bara hringir. Plast hringir með snúrum sem fara inn í gatið sem stöðuljósaperan á að fara í og tengd þar.
Re: Ljósavandamál í E46

Posted:
Sun 18. Oct 2009 22:10
by SævarSig
Hreiðar wrote:IngóJP wrote:Þarf að fara í tölvu að eyða villunni
Já, en samt. Þegar ég kveiki á stöðuljósunum, þá verða stefnuljósin alltaf kveikt.
Hvernig get ég lagað það? Kaupa ný perustæði fyrir stefnuljósaperurnar? Gæti þetta
verið þau að klikka?
Hvernig eru perurnar sem þú settir í, eru þær með sömu wattartölu og það á að vera? eða eru þetta kanski díoðuperur?
Getur verið að hann haldu að stöðuljósaperurnar séu sprungnar þessvegna kveikir hann á stefnuljósinu.
Mikið af nýjum bílum sem gera þetta, eins og t.d. þegar aðalljósapera springur. þá kveikir hann á kastaranum svo að bíllinn sé ekki "ljóslaus" að framan.
Re: Ljósavandamál í E46

Posted:
Mon 19. Oct 2009 22:03
by Hreiðar
saevar88 wrote:Hreiðar wrote:IngóJP wrote:Þarf að fara í tölvu að eyða villunni
Já, en samt. Þegar ég kveiki á stöðuljósunum, þá verða stefnuljósin alltaf kveikt.
Hvernig get ég lagað það? Kaupa ný perustæði fyrir stefnuljósaperurnar? Gæti þetta
verið þau að klikka?
Hvernig eru perurnar sem þú settir í, eru þær með sömu wattartölu og það á að vera? eða eru þetta kanski díoðuperur?
Getur verið að hann haldu að stöðuljósaperurnar séu sprungnar þessvegna kveikir hann á stefnuljósinu.
Mikið af nýjum bílum sem gera þetta, eins og t.d. þegar aðalljósapera springur. þá kveikir hann á kastaranum svo að bíllinn sé ekki "ljóslaus" að framan.
Gæti vel verið, keypti einhverjar hvítar LED perur held ég að þær kallast.
Re: Ljósavandamál í E46

Posted:
Tue 20. Oct 2009 19:34
by JonHrafn
Tölvan skynjar margar tegundir af LED perum sem sprungnar þótt þær séu það ekki.