Page 1 of 2

Bensínsparnaður með cyclone.

PostPosted: Sun 11. Oct 2009 17:09
by steing
Sælir Er einhver hér sem hefur prófað þetta? http://www.snjokedjur.com/Cyclone.html
er með x5 sem ég myndir vilja sjá með minni eyðslu. keyri samt frekar rólega. Haldið þið að þetta virki? Virðast vera þónokkrir sem að hafa reynt þetta samkvæmt heimasíðunni þeirra. Ef einhver þekkir persónulega til þessara græju væri gaman að heyra reynslusögur. + ætli það sé einhver hætta á því að ég skemmi bílinn með að hafa þetta í

Re: Bensínsparnaður með cyclone.

PostPosted: Sun 11. Oct 2009 17:37
by zazou
Image

Re: Bensínsparnaður með cyclone.

PostPosted: Sun 11. Oct 2009 17:57
by steing
zazou wrote:Image


Hvernig ber mér að lesa þetta svar. Væri rosagott ef þetta væri bara sett fram á Íslensku svo ég skilji þetta

Re: Bensínsparnaður með cyclone.

PostPosted: Sun 11. Oct 2009 17:58
by birkire
Þetta virkar ekki .

Re: Bensínsparnaður með cyclone.

PostPosted: Sun 11. Oct 2009 18:06
by SteiniDJ
Ég gerði ofur stutta könnun á netinu og þetta virðist ekki virka. Menn hafa talað um að þetta sé hannað fyrir blöndungsvélar og eigi í kenningu að virka á þeim, en ekki vélum sem eru í notkun í dag.

Re: Bensínsparnaður með cyclone.

PostPosted: Sun 11. Oct 2009 18:07
by gardara
SKM ehf. Umboðsaðili
Cyclone á Íslandi.
517-8400



SKM hljómar alveg merkilega líkt SCAM

Re: Bensínsparnaður með cyclone.

PostPosted: Sun 11. Oct 2009 18:42
by crashed
getum orðað þetta svona ef þetta virkaði öll þessi bensínsparnaðar tæki sem búið er að setja á markaðinn sem kostar flest allt undir 15 þúsund að þá væri þetta orginal frá framleiðanda í öllum bílum. því jú það er hagur framleiðanda að bíllinn eiði sem minstu eldsneiti gagnvart sölutölum

Re: Bensínsparnaður með cyclone.

PostPosted: Sun 11. Oct 2009 18:52
by gunnar
Spurning 5.
Get ég komið fyrir fleiri en einum Hiclone í bílinn?

Svar
Ef það er pláss, það er yfirleitt betra að koma fyrir fleiri en einum Hiclone hólk þar sem áhrif hvers hólks vinna saman.


Fór í FAQ inn á hiclone.is og var að skoða, sprakk alveg yfir þessu.

Ef ég sem sagt set 15x svona í 328 hjá mér verður þá bara tornado í manifoldinu hjá mér og allt í einu bara svaka power ? :lol: :lol: :lol:

Re: Bensínsparnaður með cyclone.

PostPosted: Sun 11. Oct 2009 19:49
by steing
Samt hellingur af jálvæðum umsögnum þarna. Haldið þið að þetta lið sé allt að ljúga. ekki veit ég það. En þekkið þið engan sem hefur prófað þetta?

Re: Bensínsparnaður með cyclone.

PostPosted: Sun 11. Oct 2009 20:21
by gardara
Það er nú ekkert mál að búa til reynslusögu og smella einhverju nafni við hana.

Re: Bensínsparnaður með cyclone.

PostPosted: Sun 11. Oct 2009 22:01
by steing
það er alveg rétt. ég er búin að vera að skoða þetta aðeins á netinu og get ekki séð betur en að þetta gæti mögulega virkað.. frásögn tveggja virtra fréttastofa í usa sem gerða próf með sérfræðingum, í báðum dæunum gastu keyrt rúmlega 10% meira

Re: Bensínsparnaður með cyclone.

PostPosted: Sun 11. Oct 2009 22:05
by Alpina
Ekkert hik

kýla á þetta og póstaðu svo reynslu þinni

Re: Bensínsparnaður með cyclone.

PostPosted: Sun 11. Oct 2009 22:23
by JohnnyBanana
steing wrote:það er alveg rétt. ég er búin að vera að skoða þetta aðeins á netinu og get ekki séð betur en að þetta gæti mögulega virkað.. frásögn tveggja virtra fréttastofa í usa sem gerða próf með sérfræðingum, í báðum dæunum gastu keyrt rúmlega 10% meira


hérna testuðu þeir þetta á veginum en ekki á bekk, og breyttist eyðslan ekki neitt.

Re: Bensínsparnaður með cyclone.

PostPosted: Mon 12. Oct 2009 01:29
by arnib
Við höfum auðvitað rætt um svona dót milljón sinnum hérna á bmwkrafti, og líka tölvuvifturnar sem stundum eru seldar sem "superchargerar" á 15$ á ebay...

Ég hugsa að þú munir örugglega ná að láta bílinn þinn eyða minna ef þú setur þetta í hann.

En ekki vegna þess að þetta gerir nokkurn skapaðan hlut, heldur vegna þess að þú munt ósjálfrátt keyra rólegar og fylgjast meira með eyðslunni í keppni um að láta hann eyða sem minnstu.

Svo muntu klappa sjálfum þér á bakið fyrir góð kaup og pósta reynslusögu á síðuna hjá þeim..

:bawl:

Re: Bensínsparnaður með cyclone.

PostPosted: Mon 12. Oct 2009 08:31
by zazou
arnib wrote:...
Ég hugsa að þú munir örugglega ná að láta bílinn þinn eyða minna ef þú setur þetta í hann.

En ekki vegna þess að þetta gerir nokkurn skapaðan hlut, heldur vegna þess að þú munt ósjálfrátt keyra rólegar og fylgjast meira með eyðslunni í keppni um að láta hann eyða sem minnstu.

Svo muntu klappa sjálfum þér á bakið fyrir góð kaup og pósta reynslusögu á síðuna hjá þeim..

:bawl:

Frábærlega vel orðað :clap: