Page 1 of 1

Fæ ekki rafmagn á relay fyrir bensíndælu

PostPosted: Sat 10. Oct 2009 18:42
by Maddi..
Einhverra hluta vegna..
Bíllinn startar og allt fínt, fer bara ekki í gang vegna þess að hann virðist ekki fá bensín.
Hlustaði eftir dælunni og hún virðist ekki fara í gang.
Er einhver möguleiki að þetta sé vegna þess að ég er ekki með pústið undir og þ.a.l ekki súrefnisskynjarann?

Re: Fæ ekki rafmagn á relay fyrir bensíndælu

PostPosted: Sat 10. Oct 2009 18:45
by srr
Maddi.. wrote:Einhverra hluta vegna..
Bíllinn startar og allt fínt, fer bara ekki í gang vegna þess að hann virðist ekki fá bensín.
Hlustaði eftir dælunni og hún virðist ekki fara í gang.
Er einhver möguleiki að þetta sé vegna þess að ég er ekki með pústið undir og þ.a.l ekki súrefnisskynjarann?

Myndi ekki halda það.
Tölvan á þá að nota default settings fyrir súrefnisskynjarann held ég, ef hann er ekki tengdur.
Er ekki bilað relayið ?

Re: Fæ ekki rafmagn á relay fyrir bensíndælu

PostPosted: Sat 10. Oct 2009 18:46
by birkire
pústskynjarinn hefur ekkert með þetta að segja.. nokkrum sinnum keyrt alveg pústlaus með engan skynjara og alltaf hrokkið í gang

Re: Fæ ekki rafmagn á relay fyrir bensíndælu

PostPosted: Sat 10. Oct 2009 18:59
by IceDev
Gætir prufað annan lykil og kannað hvort að það væri þjófavörnin skemmtilega

Re: Fæ ekki rafmagn á relay fyrir bensíndælu

PostPosted: Sat 10. Oct 2009 19:01
by Einarsss
stundum byrjar dælan ekki að virka fyrr en þú reynir að starta. Getur prófað að aftengja bensín feed slönguna á fuel railið og sett ofan í flösku og prófað að starta og gá hvort eitthvað komi í flöskuna, ef það kemur bensín þá vantar annaðhvort neista eða spíssarnum eru ekki að opnast

Re: Fæ ekki rafmagn á relay fyrir bensíndælu

PostPosted: Sat 10. Oct 2009 20:10
by Dóri-
gætir líka prófað að beintengja hana
þú veist að bensíndælurelay-ið er blátt

skellir bara bréfaklemmu eða vírstubb á milli 30 og 87 (eftir því sem ég best man), þá ætti dælan að fara í gang

Re: Fæ ekki rafmagn á relay fyrir bensíndælu

PostPosted: Sat 10. Oct 2009 20:58
by crashed
getur lýka prufað að teingja dæluna beint við rafgeimin. en bíllin hjá jonnybannana var hrykalega erviður í gang tókk um klukkutíma þangað til ég teingdi hann við geimin í bílnum mínum og þá fór hann í gang eftir ca 20 mínútur. en relýin sem stjórna bensíndæluni eru við hliðina á örygjaboxinu þar eru 2 til 3 relý geta verið blá og ljósgræn og eitt hvít eða ljósgrænt

Re: Fæ ekki rafmagn á relay fyrir bensíndælu

PostPosted: Sun 11. Oct 2009 15:33
by Maddi..
Sko málið er að það er enginn straumur á relay tenginu, erum búnir að skoða það allt með mæli.
Spurning hvort það sé kannski einhver slitinn vír einhversstaðar, eða einhversstaðar vantar jörð, ég veit ekki alveg hverju á að leita að. :?

Re: Fæ ekki rafmagn á relay fyrir bensíndælu

PostPosted: Sun 11. Oct 2009 19:10
by x5power
varstu ekki að breyta ú 4cyl í 6cyl? ef svo er, gæti verið að straumurinn sé á vitlausum stað í stóra tenginu! sem sagt þar sem vélarlúmið fer í bilinn.

Re: Fæ ekki rafmagn á relay fyrir bensíndælu

PostPosted: Sun 11. Oct 2009 20:01
by Jón Ragnar
x5power wrote:varstu ekki að breyta ú 4cyl í 6cyl? ef svo er, gæti verið að straumurinn sé á vitlausum stað í stóra tenginu! sem sagt þar sem vélarlúmið fer í bilinn.



Var ekki þannig hjá mér.

En ég var reyndar með M44B19 og hann með M42B18 eða eitthvað(eldri 318is mótorinn)

Re: Fæ ekki rafmagn á relay fyrir bensíndælu

PostPosted: Tue 13. Oct 2009 19:52
by BlitZ3r
Mælir bara með Volt skala með svörtu snúrunna í boddý og reynir að finna +
það eiga að vera 2 pinnar , 1 fyrir spólunna í relayinnu og 1 fyrir + á dælunna

og notar svo viðnáms skalan eða "píp" fídussinn ef er þannig á mælinnum og hefur svarta enn í boddý og ættir að finna 2 sem pípa eða með 0 í Ohm

Ef releyið tikkar þegar svissað er á bílnum þá er vandamálið á aflhlðinni
En ef það tikkar ekki þá er það á spóluhliðinni

Ath að snertunnar geta líka verið farnar, þá tikkar reley ið alveg og allir vírar í lagi en ekkert gerist

Image