Page 1 of 1

X5 2004 pixlavandamál

PostPosted: Sat 10. Oct 2009 11:49
by arnargg
Sælir Kraftsfélagar

Vil fá að spyrja ykkur varðandi þessi pixlamál, faðir minn er með BMW X5 2004 og þar er skjárinn í mælaborðinu byrjaður að missa pixla og einnig skjárinn fyrir útvarpið. Hann hringdi í umboðið og þar fékk hann þau svör að það væri ekkert hægt að gera í þessu nema kaupa nýja skjái. Verðið á þessum 2 skjáum er 530.000 + ísetning.

Því spyr ég ykkur hvort það sé til einhver önnur raunhæf lausn á þessu vandamáli og hvort menn hafa einhverja reynslu af þessum lausnum.

Með kveðju
Arnar

Re: X5 2004 pixlavandamál

PostPosted: Sat 10. Oct 2009 12:02
by iar
Spurning að tékka kannski á þessu:

http://www.bmwclusterrepair.com/

Aðeins ódýrara en hálf milljón!! :lol:

Svo er til slatti af DIY síðum sem lýsa þessari aðgerð, amk. fyrir E39 og E38. En mér sýnist það samt vera meiriháttar aðgerð þar sem þarf að taka mælaborðið svotil í frumeindir.

Re: X5 2004 pixlavandamál

PostPosted: Sat 10. Oct 2009 13:06
by arnargg
Takk fyrir fyrir þetta, mun skoða það. Einhverjir með reynslu af þessu?

Re: X5 2004 pixlavandamál

PostPosted: Sat 10. Oct 2009 15:05
by sosupabbi

Re: X5 2004 pixlavandamál

PostPosted: Sat 10. Oct 2009 20:53
by saemi
Eina sem virkar er að rífa úr og senda út og láta laga þetta. C.a. 100EUR ef þetta er sami prís og þegar ég var að garfa í þessu. Getur gleymt að gera þetta sjálfur, been there done that.. og ég get margt.

Re: X5 2004 pixlavandamál

PostPosted: Sat 10. Oct 2009 20:56
by Alpina
saemi wrote:Eina sem virkar er að rífa úr og senda út og láta laga þetta. C.a. 100EUR ef þetta er sami prís og þegar ég var að garfa í þessu. Getur gleymt að gera þetta sjálfur, been there done that.. og ég get margt.


:thup: TEAM BE

Re: X5 2004 pixlavandamál

PostPosted: Sun 11. Oct 2009 03:43
by GriZZliE
saemi wrote:Getur gleymt að gera þetta sjálfur


Ég reyndi þetta líka og endaði með því að ég þurfti að redda mér öðru mælaborði í varahluti.. Mæli enganveginn að menn séu að reyna þetta sjálfir! Frekar að fá fagmenn til að gera þetta. :wink:

Re: X5 2004 pixlavandamál

PostPosted: Sun 11. Oct 2009 11:36
by arnargg
Takk fyrir góð svör, mæla menn með einhverjum sérstökum aðila úti sem þeir hafa reynslu af?

Re: X5 2004 pixlavandamál

PostPosted: Sun 11. Oct 2009 21:22
by saemi
arnargg wrote:Takk fyrir góð svör, mæla menn með einhverjum sérstökum aðila úti sem þeir hafa reynslu af?


Sendu póst á skúra Bjarka (bjarka)

Re: X5 2004 pixlavandamál

PostPosted: Mon 12. Oct 2009 13:26
by thisman
Verðið á þessum skjáum er náttúrlega bara út úr kortinu - og þar sem þetta er eitthvað sem virðist hafa verið handónýt hönnun í upphafi er óþolandi að BMW sjái ekki sóma sinn í að selja þetta á kostnaðarverði.

Sorrý, smá röfl bara. ;)

Re: X5 2004 pixlavandamál

PostPosted: Mon 12. Oct 2009 15:31
by LEAR
530 000 er bara bull. Ég lagaði þetta í mínum E38 ekkert stór mál (kanski er ég klárari en sæmi :D )og kostar ekki mikið. Ef umboðið getur ekki lagað þetta þá á bara ekki að versla við þá.

Re: X5 2004 pixlavandamál

PostPosted: Mon 12. Oct 2009 19:36
by arnargg
Endum líklegast á að senda þessa skjái út, takk fyrir öll svörin. :D