Sælir Kraftsfélagar
Vil fá að spyrja ykkur varðandi þessi pixlamál, faðir minn er með BMW X5 2004 og þar er skjárinn í mælaborðinu byrjaður að missa pixla og einnig skjárinn fyrir útvarpið. Hann hringdi í umboðið og þar fékk hann þau svör að það væri ekkert hægt að gera í þessu nema kaupa nýja skjái. Verðið á þessum 2 skjáum er 530.000 + ísetning.
Því spyr ég ykkur hvort það sé til einhver önnur raunhæf lausn á þessu vandamáli og hvort menn hafa einhverja reynslu af þessum lausnum.
Með kveðju
Arnar

