bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Sjálfsskiptitölvu vesen
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=40391
Page 1 of 1

Author:  JohnnyBanana [ Thu 08. Oct 2009 22:11 ]
Post subject:  Sjálfsskiptitölvu vesen

ég tók sjálfsskiptitölvuna og aksturstölvuna úr sambandi þegar ég var skipta um pakkningar í fuel railinu og svo loka ég öllu og starta bílnum (eftir smá rafgeymaleiðindi) og fæ bullandi gírkassaljós og bíllinn fer ekki í neina af þremur skiptistillingunum þannig að við reyndum að núllstilla tölvuna en ekkert breytist þannig að ég prófa að keyra bílinn og hann semsagt er bara fastur í þriðja gír. ég fór svo með hann niðrí Eðalbíla í dag að lesa af honum og þeir semsagt ná engu sambandi við sjálfskiptitölvuna, eins og hún sé ekki tengd, þrátt fyrir að hún sé það. þeir botnuðu ekki neitt í neinu, engin öryggi sprungin eða neitt. veit einhver hvað er að hérna? ég fer með hann uppí eðalbíla aftur í þarnæstu viku þar sem þeir höfðu engan tíma í þetta í dag, og það verður rándýrt þar sem þeir segjast þurfa amk tvö klukktíma bara til að reyna komast að því hvað er að. tvö klukkutíma ef ég er heppin þeas.

öll hjálp er vel þegin.

Author:  JohnnyBanana [ Fri 09. Oct 2009 16:39 ]
Post subject:  Re: Sjálfsskiptitölvu vesen

hefur enginn lent í þessu?

Author:  maxel [ Sat 10. Oct 2009 01:40 ]
Post subject:  Re: Sjálfsskiptitölvu vesen

Tjekka öll tengi betur?
Taka rafmagnið af bílnum í hálftíma, taka tölvuna úr, skoða hvort einhverjir pinnar í tölvutenginu séu bognir, ef ekki prófa tengja hana aftur og setja síðan rafmagnið aftur á....
Ég er tómur en skaðar ekki að prófa...

Author:  JohnnyBanana [ Sat 10. Oct 2009 16:28 ]
Post subject:  Re: Sjálfsskiptitölvu vesen

það er alltílagi með öll tengi, en ég ætla að prófa að taka hann úr sambandi.

Author:  maxel [ Sat 10. Oct 2009 16:32 ]
Post subject:  Re: Sjálfsskiptitölvu vesen

Láttu okkur vita hvernig fer :)

Author:  JohnnyBanana [ Sun 11. Oct 2009 23:42 ]
Post subject:  Re: Sjálfsskiptitölvu vesen

ég prófaði að taka hann úr sambandi í hálftíma og það eina sem ég græddi á því var að hann fór smoother í gang og aðeins rólegri hægagangur. gírkassatölvan ennþá með stæla..

Author:  JohnnyBanana [ Mon 19. Oct 2009 19:01 ]
Post subject:  Re: Sjálfsskiptitölvu vesen

skiptingin kominn í lag, það eina sem var að var að pinninn á tenginu sem stingst fyrst inní heilann áður en maður læsir var brotinn og náði tengið engu sambandi við heilann. frekar basic stuff, skil ekki hvernig við tókum ekki eftir þessu. 25þús króna viðgerð vegna þess að þeir þurftu að rífa alla tölvuna úr og festa brakketið sem var víst laust af einhverjum ástæðum, og það var víst svaka vesen.

svo fékk ég loksins að njóta M50 manifoldsins míns sem er búið að vera SVAKA vesen að koma í gang, og vá bíllinn er allt annar :D

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/