bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Hvað þarf ég til að ná 170 hestöflum?
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=4039
Page 1 of 3

Author:  bebecar [ Thu 15. Jan 2004 14:40 ]
Post subject:  Hvað þarf ég til að ná 170 hestöflum?

Það eru komnar af stað pælingar hjá mér fyrir sumarið (reyndar aðallega sumarið 2005).

Hvað væri hagkvæmasta leiðin til að ná vélinni í 170 hestöfl? Nú er hún tiltölulega nýuppgerð og var boruð út nokkuð mikið við þá aðgerð (E34 M5 veit þetta reyndar betur en ég).

Mig langar að ná 170 hestöflum og halda núverandi innspýtingu - næst þetta með heitari ás, hærri þjöppu og pústi? Ég er ekki mjög tæknilega þenkjandi þannig að þið sem eru mér vitrari í þessu endilega látið heyra í ykkur. Það er á döfinni hjá mér að skipta um rockerarmana, væri ekki tilvalið að setja heitari ás í leiðinni og hvað þarf fleira með honum?

Myndi kveikjumagnari hjálpa til?

Þetta er í rauninni það sem ég vilf á og stefni á. Þetta ætti ekki að vera stórmál og vonandi gæti maður réttlætt Alpina strípurnar með svona aðgerð :wink:


Já, og togið þyrfti að fara í minnsta kosti 210 NM (upp úr 190 NM).Image

Author:  gstuning [ Thu 15. Jan 2004 17:18 ]
Post subject: 

Ég skal allaveganna segja þér það að þú eyðir ekki einni krónu í alpina vörur, ær eru bara of dýrar miðað við hvað þú færði staðinn


Það er best að setja 325i vél ofan í og vera með 225nm tog í stað 210nm,
en það er besta leiðin, það er hægt að finna gott heimili fyrir núverandi vél í annan e21,

en þar sem að þú vilt það ekki, né setja 325i innspýttingu á bílinn þá er eftir að skipta um allt inntak og úttak, ása, bensín deilir, flækjur, sérsmiðað púst, tölvu, það ætti svona að redda þessu en verður hvergi nærri því að vera eins og 323i vél með 325i injection kerfi eða bara hreinlega 325i vél með 323i injection kerfi,, hvað þá 325i vél með 325i injection kerfi, eða bara M50 :)

Author:  Megadeth [ Thu 15. Jan 2004 17:44 ]
Post subject: 

hefurðu pælt í því að selja bíllinn :wink: og kaupa sér einn með stærri vél.

Author:  oskard [ Thu 15. Jan 2004 17:45 ]
Post subject: 

Megadeth wrote:
hefurðu pælt í því að selja bíllinn :wink: og kaupa sér einn með stærri vél.


e21 kemur ekkert með stærri vél

Author:  Megadeth [ Thu 15. Jan 2004 17:46 ]
Post subject: 

nei ég var ná að meina að hann fái sér bara Alipna eða bara sinn gamla aftur þannig að ég gæti keypt hann.

Author:  bebecar [ Thu 15. Jan 2004 22:07 ]
Post subject: 

Hehe - ef vel er boðið þá er kannski hægt að losa hann frá mér.

En almennt er ég ekki að spá í að skipta.

Við frúin ræddum þetta áðan og hún er til í þetta. Þá er planið að gera þennan betri og kaupa svo bara annan bíl til að eiga með. Þá verður þessi áfram bara sumarbíll.

Ef maður ætlar að vera raunverulegur í þessu þá er það líklegast að taka innspýtingu úr 325i. Hinsvegar er ég búin að skoða nokkuð vel í kringum mig og það er hægt að fá flest sem þarf í vélina - ég trúi varla að Alpina vélarhlutir séu mikið dýrari en BMW þar sem boddíhlutirnir og innréttingarhlutirnir hjá þeim eru bara eiginlega ódýrir.

Svo verð ég auðvitað að réttlæta rendurnar á hann :wink:

Dýrasti hluturinn sem ég hef séð í þessar breytingar eru felgurnar! Og alltaf erum við að tala um frekar litla peninga miðað við hvað kostar að fá sér yngri og öflugri bíl.

Það er bara of gaman að keyra þetta til þess að maður skoði þetta ekki til enda.

Og ef ég dreifi þessu á 2-3 sumur (þriðja sumarið færi í innréttinguna) þá ættu peningar ekki að verða stórmál. Ég er líka með vini í Þýskalandi, Bretlandi, Frakklandi og Danmörku til að pikka upp hluti fyrir mig og koma þeim heim, reyndar einn í USA líka. Augljóslega þyrfti stærri hlutir að fara í flutning.

Author:  bebecar [ Thu 15. Jan 2004 22:11 ]
Post subject: 

gstuning wrote:
en þar sem að þú vilt það ekki, né setja 325i innspýttingu á bílinn þá er eftir að skipta um allt inntak og úttak, ása, bensín deilir, flækjur, sérsmiðað púst, tölvu, það ætti svona að redda þessu en verður hvergi nærri því að vera eins og 323i vél með 325i injection kerfi eða bara hreinlega 325i vél með 323i injection kerfi,, hvað þá 325i vél með 325i injection kerfi, eða bara M50 :)


Það kæmi mögulega til greina að setja innspýtingu af 325i á bílinn, en hvað áttu við með skipta um allt inntak og úttak? Flækjur, ás og púst ættu ekki að vera stórmál - dugar það ekki til að ná 27 hestöflum? C1 notaði sömu innspýtingu og 323i... Eina sem ég er að spá hvort blokkin sé nógu sterk eftir að hún var boruð út fyrir svona breytingar...

Author:  gstuning [ Fri 16. Jan 2004 10:45 ]
Post subject: 

Ég og Stefán erum búnir að vera velta því fyrir okkur að smíða svona næstum individual throttle body apparat á M10 vél,

þ.e það væru runnerar frá heddinu(notað af original M10 soggrein, breytt í velocity stacks) x langir og stórir, þeir myndu enda í svona stóru boxi eins og M5 og M3 vélarnar, svo myndu vera 3 318i throttle body framann á boxinu og myndu öll tengjast á sína loftsíu, 3 ættu að vera nóg til að koma loftinu inn og ekki trufla eða hindra flæði

Þetta væri svo keyrt með standalone kerfi og því þyrfti ekki MAF eða AFM loftflæðimæli, og því væri ekkert til að hindra loftflæðið,

Þessi uppsetning væri best á alla NA vélar sem eru ekki með þvílíkt grófa ása eða eitthvað svoleiðis

Author:  Logi [ Fri 16. Jan 2004 11:00 ]
Post subject: 

bebecar wrote:
Eina sem ég er að spá hvort blokkin sé nógu sterk eftir að hún var boruð út fyrir svona breytingar...

Ég held að þú þurfir ekki að hafa áhyggjur af því, man reyndar ekki hvað hún er mikið boruð, en það stendur á plötunni sem er á ventlalokinu!

Author:  bebecar [ Fri 16. Jan 2004 11:13 ]
Post subject: 

Ég ætla að hlaupa út og kíkja á ventlalokið - svo er náttúrulega eitt. Ég þarf aðstoð með að henda öllu þessu í!

Author:  Logi [ Fri 16. Jan 2004 11:18 ]
Post subject: 

Það er örugglega hægt að finna góða menn í það :wink:

Author:  bebecar [ Fri 16. Jan 2004 11:32 ]
Post subject: 

Ok, þar stendur cylinder 000 en 025 fyrir hina tvo reitina. Hver er flínkur að reikna?

Author:  Logi [ Fri 16. Jan 2004 12:35 ]
Post subject: 

Þetta er örugglega bara lágmarksútborun til að geta farið í næstu stærð fyrir ofan (yfirstærð) í stimplum!

Author:  Jss [ Sat 17. Jan 2004 01:50 ]
Post subject: 

Þetta eru rosalega skemmtilegar pælingar í sem eru í gangi hjá þér, í stað kveikjumagnara þá er ábyggilega möguleiki fyrir þig að fá Nology kertaþræði sem magna neistann upp og síðan er náttúrulega hægt að bæta magnaranum ofan á það. :D Veit samt ekki hversu miklu þetta bætir við.

Author:  bebecar [ Sat 17. Jan 2004 10:13 ]
Post subject: 

Hvar fær maður Nolgoy, nú er að raka öllum þessu upplýsingum saman :wink:

Page 1 of 3 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/