Page 1 of 1

Afturljós á E36 Coupe/Cabrio

PostPosted: Tue 06. Oct 2009 05:17
by gjonsson
Bíllinn minn er með OBC check control og þokuljós að aftan.
Er það eitthvað sem hafa ber í huga við kaup á afturljósum á E36 coupe/cabrio eða skipta þessi atriði kannski engu máli?

Megið endilega láta mig vita ef það er eitthvað annað sem ég er að gleyma varðandi þetta.

Re: Afturljós á E36 Coupe/Cabrio

PostPosted: Wed 07. Oct 2009 00:15
by Danni
Held að ég sé að fara með rétt mál þegar ég segji að allir Euro bílar eru með þokuljós að aftan en allir US bílar eru ekki með það, þannig þetta er eitthvað sem þú ættir að þurfa að athuga ef þú kaupir frá US en ekki EU. Ég er samt ekki 100% á þessu.

Síðan kíkti ég bmwfans.info og prófaði að setja inn '95 323i Cabrio og samkvæmt þeirr síðu er mismunandi partanúmer eftir því hvort bíllinn er með check control eða ekki:

http://bmwfans.info/parts/catalog/E36/C ... ear_light/