Page 1 of 1

Hjálp! Olíureykur úr pústi

PostPosted: Sun 04. Oct 2009 21:39
by HjorturG
Núna tók ég eftir því að það kemur af og til þykkur grár reykur (olíureykur?) úr pústinu á bílnum mínum, 316 E36 1999 módel. Virðist aðallega koma þegar hann er kaldur eða búinn að standa smá, og varir ekki lengi, en svona kemur og fer af og til og já, virðist aðallega koma þegar hann er kaldur.
Það er þónokkuð síðan hann fór í smurningu og ég athugaði olíuna á vélinni áðan og viti menn, hún er niðurfyrir neðsta strikið á kvarðanum og fer bíllinn í smurningu og það strax á morgun.
En ég vill eiginlega fyrst vita hvað gæti verið að vélinni? Hún gengur vel og ekkert vesen, nema þessi reykur!
Gæti hann verið að brenna olíunni og þessvegna sé svona lítið eftir á vélinni?

Afhverju gerist þetta?

Hjálp!

:? :x

Re: Hjálp! Olíureykur úr pústi

PostPosted: Sun 04. Oct 2009 22:51
by arnib
Olíureykur er blár á litinn, svona grár reykur (gufa?) bendir frekar til þess að hedd pakkning sé farin og það
sé að komast vatn úr kæligöngunum inn í sprengirýmið..

Það er þá líklegt að það sé frekar sæt lykt af þessum reyk en það myndi vera frostlögurinn...

Re: Hjálp! Olíureykur úr pústi

PostPosted: Sun 04. Oct 2009 23:05
by Saxi
Sé reykurinn grár og vatn ekki að hverfa úr vatnskassanum hjá þér getur verið að þetta sé raki sem safnast fyrir í pústinu og er að gufa upp. Sérstaklega á þetta við ef þú keyrir aðallega stuttar vegalengdir.

kv.

Re: Hjálp! Olíureykur úr pústi

PostPosted: Mon 05. Oct 2009 00:18
by HjorturG
Ok þetta er ekki blár reykur, og ekki vatnsgufa held ég alveg örugglega, það er frekar eins og þetta sé sótugur reykur eða e-ð ? Svart sót í púststútinum? Og hann er alveg vel þykkur.. En ég hendi honum í smurningu á eftir, gæti þetta e-ð tengst því að það sé lítil olía á honum?

Þetta kom reyndar núna fyrst eftir að fór að kólna, er að spá hvort hann sé bara einhvernvegin að blása út sóti þá úr pústinu sem hefur safnast saman? Þá mögulega vatnsgufa eins og Saxi sagði en blönduð sóti?

Re: Hjálp! Olíureykur úr pústi

PostPosted: Mon 05. Oct 2009 00:23
by HjorturG
Líka eitt, hann kemur t.d. þegar ég starta bílnum fyrst, en svo keyrir maður smá og hann hverfur, en svo e-ð seinna á t.d. ljósum eða e-ð þá kemur þetta aftur? Og það er enginn millivegur, annaðhvort mikill reykur eða enginn :S Skal reyna að redda videoi á morgun..