Page 1 of 1

Þurfa lambdaskynjarar að vera í stöðugu flæði?

PostPosted: Thu 01. Oct 2009 23:09
by BirkirB
Var að setja flækjur á mótorinn og notaði lambdaskynjarana úr M52...setti þá á þessar flækjur sem koma úr s50b32 (held ég, gæti verið b30)
Á M52 greinunum stóðu þeir inn úr rörinu en á flækjunum eru þeir smá inní draslinu sem maður skrúfar þá í...þeir eru semsagt ekki alveg í flæðinu...

Svo var mixað eitthvað púst 2" í gegn...keyrði heim og það var mjög mikið bassahljóð upp að 3000rpm...gerðist voða lítið ef maður gaf inn en allt í einu tekur bíllinn kipp og þá kemur svona "eðlilegt" hljóð..?

Gætu þetta verið lambdaskynjarar :?:

Re: Þurfa lambdaskynjarar að vera í stöðugu flæði?

PostPosted: Fri 02. Oct 2009 14:20
by BirkirB
Hljóta að vera þessir skynjarar...bensínið nánast rennur í gegnum pústið...

Re: Þurfa lambdaskynjarar að vera í stöðugu flæði?

PostPosted: Fri 02. Oct 2009 14:55
by gardara
Hvaða skynjari er lambdaskynjari?

Re: Þurfa lambdaskynjarar að vera í stöðugu flæði?

PostPosted: Fri 02. Oct 2009 15:05
by BirkirB
nr.1
http://www.realoem.com/bmw/showparts.do?model=BF71&mospid=47429&btnr=11_1471&hg=11&fg=50

þarna stendur reyndar súrefnisskynjari...á bmwfans.info stóð lambda...feil :oops:

Re: Þurfa lambdaskynjarar að vera í stöðugu flæði?

PostPosted: Sat 03. Oct 2009 20:13
by Lindemann
bæði rétt

þetta eru súrefnisskynjarar, mæla bensínblöndu sem er gefin upp sem annaðhvort hlutfall beníns á móti lofti eða sem lambda gildi