Page 1 of 2
Þarf að fá upplýsingar í drif málum (noob)

Posted:
Mon 28. Sep 2009 18:42
by Maggi B
Sælir veriði, ég er með bmw compact sem er búið að swappa í m50 og mig vantar annað drif í tíkina, hann er á sjálfskiptu drifi úr compact sem er soðið og það tekur þessa compact öxla og brýtur þá eins og tannstöngla endalaust. mig vantar lausn á þessu máli, hvort sem ég fæ þetta hér hema eða þarf að kaupa að utan. en mig vantar upplýsingar til þess. fróðir menn ´hér segja að það passi e30 drif í bílinn en ég hef nú engar sannanir fyrir því og mig vantar semsagt upplýsingar með það og hvar og hvernig ég get keypt mér læsingu að utan. ég er noob í þessum bmw málum þannig að reynum að halda þessu á íslensku. fyrirfram þökk Magnús
Re: Þarf að fá upplýsingar í drif málum (noob)

Posted:
Mon 28. Sep 2009 18:45
by gunnar
Það sem þig vantar er læst drif úr E30. Væri best fyrir þig að fá stóra E30 drifið.
Ættir að geta notað líka E30 325 öxla, þeir eru skornir í sundur í miðjunni og soðnir aftur. Gerir þá sterkari sem sagt.
Re: Þarf að fá upplýsingar í drif málum (noob)

Posted:
Mon 28. Sep 2009 18:48
by gstuning
OBX læsing af ebay.
Stórt E30 drif sem er opið. Ætti að vera eitthvað til af þeim á íslandi.
Re: Þarf að fá upplýsingar í drif málum (noob)

Posted:
Mon 28. Sep 2009 18:52
by gunnar
gstuning wrote:OBX læsing af ebay.
Stórt E30 drif sem er opið. Ætti að vera eitthvað til af þeim á íslandi.
Já eða kaupa stóra E30 drifið úti með læsingu og því hlutfalli sem honum vantar.
Býst við að hlutfallið sem honum vantar (3.25-3.64~) fer eftir því hvaða kassa hann er með.
Re: Þarf að fá upplýsingar í drif málum (noob)

Posted:
Mon 28. Sep 2009 19:02
by gstuning
verð á læstum drifum og flutningur hingað er ekkert eins og var.
Ég myndi telja að læsing að utan + drif frá íslandi yrði ódýrast.
Re: Þarf að fá upplýsingar í drif málum (noob)

Posted:
Mon 28. Sep 2009 19:14
by ingo_GT
Re: Þarf að fá upplýsingar í drif málum (noob)

Posted:
Mon 28. Sep 2009 20:48
by Maggi B
er þetta læsingin sem ég þarf. well ef húsið er þá ekki mikið dýrt þá er þetta ok. væri rosa gott ef menn gætu sett inn linka, og líka ef menn vita um drifhús fyrir mig, einnig öxla. er fastur heima hjá mér eins og er að jafna mig eftir aðgerð svo að öll hjálp er vel þegin
Re: Þarf að fá upplýsingar í drif málum (noob)

Posted:
Mon 28. Sep 2009 20:58
by gardara
obx er awesome
Re: Þarf að fá upplýsingar í drif málum (noob)

Posted:
Mon 28. Sep 2009 21:18
by arnibjorn
Hérna er eitt 3.25 læst drif til sölu. Kemur reyndar úr E28 þannig að þig vantar lok af E30 drifi.
http://www.e30tech.com/forum/showthread ... light=diffHérna er eitt á ebay
http://cgi.ebay.com/ebaymotors/BMW-E28- ... .m20.l1116Þetta er nokkuð ódýrara en að kaupa læsingu á 400$ og eiga þá eftir að flytja hana heim og láta setja í annað drif.
Síðan mæli ég bara með því að leita á E30tech.com eða r3vlimited.com ef þig vantar E30 drif. Já og svo auðvitað ebay líka

Re: Þarf að fá upplýsingar í drif málum (noob)

Posted:
Mon 28. Sep 2009 21:35
by Maggi B
var ekki einhver hérna sem býr úti og getur reddað varahlutum heim ?
Re: Þarf að fá upplýsingar í drif málum (noob)

Posted:
Mon 28. Sep 2009 21:52
by arnibjorn
lethal323 wrote:var ekki einhver hérna sem býr úti og getur reddað varahlutum heim ?
Man ekki eftir því, en ég man eftir einhverri gellu á l2c sem var að bjóða uppá þessa þjónustu
http://www.live2cruize.com/spjall/showt ... r%EDkjunum
Re: Þarf að fá upplýsingar í drif málum (noob)

Posted:
Mon 28. Sep 2009 22:08
by Dóri-
gardara wrote:obx er awesome
ótrúlegt vesen að stilla þetta inn og það þarf í mörgum tilfellum að fræsa stilliskinnur því að þær eru ekki til í réttum stærðum
Re: Þarf að fá upplýsingar í drif málum (noob)

Posted:
Mon 28. Sep 2009 23:26
by Maggi B
er ekki einhver sem getur hjálpað mér almennilega með þetta. svo að ég geti pantað eða keypt það sem ég þarf í þetta fyrir næsta sumar
Re: Þarf að fá upplýsingar í drif málum (noob)

Posted:
Wed 30. Sep 2009 07:00
by Alpina
lethal323 wrote:er ekki einhver sem getur hjálpað mér almennilega með þetta. svo að ég geti pantað eða keypt það sem ég þarf í þetta fyrir næsta sumar
ég á 3.73 stórt opið drif án loks..
að þú brjótir öxlana er ég bit á

Re: Þarf að fá upplýsingar í drif málum (noob)

Posted:
Wed 30. Sep 2009 08:20
by gunnar
Alpina wrote:lethal323 wrote:er ekki einhver sem getur hjálpað mér almennilega með þetta. svo að ég geti pantað eða keypt það sem ég þarf í þetta fyrir næsta sumar
ég á 3.73 stórt opið drif án loks..
að þú brjótir öxlana er ég bit á

Er það ekki bara útaf því hann er með soðið drif.