Page 1 of 1

Klonk !

PostPosted: Mon 28. Sep 2009 00:21
by DoriSig
Sælar,

"Það er eitthvað hljóð í bílnum mínum"

Málið er það: .. Þegar ég keyri yfir ójafnan veg s.s ef það er einhverjar sprungir í veginum eða þegar hann kemur allt í eitthvað uppúr veginum og bílinn fjaðrar upp og strax niður þá kemur svona klonk aftan úr bílnum og stundum framan úr honum. Þetta kemur augljóslega frá hjólabúnaðinu og þar með gormunum. Ég skoðaði gormafestingarnar framan í honum og rærnar voru frekar laflausir og ég herti þá, svo reif ég allt úr honum til að komast að afturgormafestingunum og þar var saman sagan. Þar er einhver skífa sem ég gat léttilega snúið.. þannig að ég festi rærnar og skífan varð föst. Síðan minkaði hljóðið alveg um helling og ég heyrði varla í því þar til nú. Nú er þetta djöfulsins klonk komið aftur.. er þetta alltaf að losna aftur? .. af hverju er það? eða getur þetta verið eitthvað annað ?

Með fyrirfram þökk,
DóriSig

Re: Klonk !

PostPosted: Mon 28. Sep 2009 03:37
by IceDev
Demparafóðring?

Re: Klonk !

PostPosted: Mon 28. Sep 2009 12:18
by Andri Fannar
Ég er með svona klonk líka, hægra megin að framan þegar ég fer á einhverjar ójöfnur eða niður af bílastæðinu eða álíka.

Gæti þetta ekki verið í ballanstönginni?

Re: Klonk !

PostPosted: Mon 28. Sep 2009 12:22
by Einarsss
Er með svipað dæmi og ég fann út að það er slag í einni spindilkúlunni í framspyrnunni hjá mér

Re: Klonk !

PostPosted: Mon 28. Sep 2009 19:17
by Lindemann
spindlar eða balansstangarendar

Re: Klonk !

PostPosted: Mon 28. Sep 2009 21:05
by Krissiice
Þetta er lika svona hja að aftan og mer var sagt að þetta væri demparafóðring.

Re: Klonk !

PostPosted: Mon 28. Sep 2009 22:26
by dabbiso0
getur líka bara verið demparinn sjálfur