Page 1 of 1

rúðuupphalari

PostPosted: Thu 10. Sep 2009 10:23
by Eymar
ef eitt lítið hjól sem er undir rúðunni í bimma er brotið, þar þá að kaupa allan helvitis pakkann ef það á að gera við það? þetta er semsagt í 316 compact
veit að þetta hljomar ekki mjög skýrt en jaja

Re: rúðuupphalari

PostPosted: Thu 10. Sep 2009 14:40
by ömmudriver
Hvernig á nokkur maður að skilja hvað stendur hér að ofan :|

Á þetta hjól að vera undir framrúðunni og er þá í miðstöðinni eða er þetta undir hliðarrúðu og er þá tengt rúðuupphalaranum?

Re: rúðuupphalari

PostPosted: Thu 10. Sep 2009 14:47
by Eymar
sko, þetta er lítið hjól undir rúðunni bílstjóramegin, sem gerir þaðað verkum að rúðan skrúfast ekki niður. og var að spá í hvort það þyrfti að kaupa allan pakkann eða bara þetta litla hjól

Re: rúðuupphalari

PostPosted: Thu 10. Sep 2009 14:48
by ömmudriver
Eymar wrote:sko, þetta er lítið hjól undir rúðunni bílstjóramegin, sem gerir þaðað verkum að rúðan skrúfast ekki niður. og var að spá í hvort það þyrfti að kaupa allan pakkann eða bara þetta litla hjól


Ertu búinn að hringja í B&L og spyrja þá að þessu?

Re: rúðuupphalari

PostPosted: Thu 10. Sep 2009 14:48
by Zed III
Image

Re: rúðuupphalari

PostPosted: Thu 10. Sep 2009 21:21
by Eymar
já þeir segja að það þurfi að kaupa allt unitið, var bara að spá hvort það væri hægt að fá á partasölu eða etthvað bara þeta stykki

Re: rúðuupphalari

PostPosted: Thu 10. Sep 2009 21:28
by saemi
Ef þú vilt fá gott og nákvæmt svar, þá er best að setja inn góða og nákvæma spurningu :P

Re: rúðuupphalari

PostPosted: Fri 11. Sep 2009 08:49
by Zed III
það er fullt af liði að rífa e36 á "til sölu" síðuni, einhver þar ætti að eiga upphalarann.

Re: rúðuupphalari

PostPosted: Fri 11. Sep 2009 10:20
by Daníel
Í e36 er mjög algengt að hvítu plaststýringarnar brotni, ertu að meina þær?

Re: rúðuupphalari

PostPosted: Fri 11. Sep 2009 15:29
by Eymar
já þettta er það sem heldur rúðunni beinni, ef ég skrúfa hana of mikið niður þá pompar hún niður.

Re: rúðuupphalari

PostPosted: Sun 13. Sep 2009 23:19
by sosupabbi
Þurfti að kaupa svona í E34 hjá mér, fékk síðustu í umboðinu fyrir einhverjum mánuðum, sama stykkið í E34 og E36 þaes ef þu ert að tala um hvítu plast smelluna sem tengir upphalarann í rúðuna. Kostaði þá 300kall, bara byðja þá um að fá þetta með hraðsendingu, þeir geta það alveg.