Page 1 of 1

poly fóðringar

PostPosted: Sun 30. Aug 2009 13:44
by takecover
smá pæling fóðringarnar í frammfjöðrunni hjá mér eru farnar að slappast var að spá að skipta þeim út fyrir póly fóðringar,,,, var að pæla er hægt að kaupa þær hérna heim ef svo er hverjir eru að selja þær,,,, eða verð ég að kaupa úti og láta senda???????????????????

Re: poly fóðringar

PostPosted: Sun 30. Aug 2009 13:47
by jon mar
eftir hvaða eiginleikum ertu að sækjast í bílnum?

Re: poly fóðringar

PostPosted: Sun 30. Aug 2009 16:45
by takecover
að hann verði stífari er að dæla í að dreita í drifter verður svo lækkaður og stífaður allur í vetur og svo skipt um vél og breitt í beinskipt..

Re: poly fóðringar

PostPosted: Sun 30. Aug 2009 21:23
by jon mar
nú skulum við miða poly við oem fóðringuna

oem= nice og fínt

poly = stíft, lítið og ekkert "give" í þeim þannig lagað. Bíllinn verður slatta mikið hastur. Ekki fyrir bakveika né vælukjóa.

Ég veit þetta því ég er með eins FULL poly og hægt er í e34.

Ef þú ætlar að keyra bílinn mikið utan brautar þá geturðu allt eins eytt peningunum þínum í að endurnýja allar gömlu fóðringarnar með nýjum oem. Svo bætiru við stífari gormum og dempurum í stíl ásamt því svo að spandera í stærri og betri sway bars.

Ef þú svo ætlar "all out" hvað varðar fjöðrun, þá náttúrlega seturðu poly.

Gunni GST selur powerflex, eða allavega síðast þegar ég vissi.

Re: poly fóðringar

PostPosted: Sun 30. Aug 2009 22:06
by Alpina
Poly er fyrir hardcore

Re: poly fóðringar

PostPosted: Sun 30. Aug 2009 23:02
by Einarsss
jeii poly umræða!

Fyrir græju poly

fyrir annað = gúmmí


FYI þá er til mismunandi pólý efni með mismunandi stífleika .. aron jarl er með mega mega harðar heimarenndar pólyplast fóðringar og þær eru vægast sagt hræðilegar .. mæli með að kaupa merkjavöru í þessu

Re: poly fóðringar

PostPosted: Mon 31. Aug 2009 00:02
by Jón Ragnar
einarsss wrote:jeii poly umræða!

Fyrir græju poly

fyrir annað = gúmmí


FYI þá er til mismunandi pólý efni með mismunandi stífleika .. aron jarl er með mega mega harðar heimarenndar pólyplast fóðringar og þær eru vægast sagt hræðilegar .. mæli með að kaupa merkjavöru í þessu



Er ekki Jarlinn með Nylon?
það er margfalt stífara.


Sjálfur er ég mikið að velta polys fyrir mér.

Re: poly fóðringar

PostPosted: Mon 31. Aug 2009 00:05
by gstuning
gúmmí = road
poly = track
plast/járn = race

Re: poly fóðringar

PostPosted: Mon 31. Aug 2009 00:35
by gardara
ég spáði mikið í poly vs gúmmí þegar ég þurfti að skipta um einhverjar fóðringar.

Mér finnst eginlega of mikið gert úr þessu, ég finn örlítið að bíllinn er hastari, en ekkert neitt svakalegt. Ef ég hefði fengið bílinn með þessum fóðringum þá hefði ég ábyggilega aldrei tekið eftir því.

Annað sem er líka vert að athuga, poly fóðringar er oftast mun auðveldara að setja í þar sem maður þarf ekki að pressa þær í... Allavega þær fóðringar sem ég hef skipt um.

Re: poly fóðringar

PostPosted: Mon 31. Aug 2009 10:16
by Mazi!
það er Pólý í gersamlega öllum undirvagn hjá mér, ásamt tree house racing controlarms og fleira..


get ekki sagt að það sé eitthvað voða kósý þegar maður er að keyra hálfdauður í vinnuna á morgnana, finn fyrir hvítulínunum á götunni ásamt öllum misfellum og hæðum :?

en þetta er klárlega málið í bíla sem eru aðalega leiktæki, stífar allt mega vel upp.

Re: poly fóðringar

PostPosted: Mon 31. Aug 2009 11:00
by Djofullinn
Poly fóðringar endast líka margfalt lengur en gúmmí

Re: poly fóðringar

PostPosted: Mon 31. Aug 2009 18:31
by Alpina
Poly er fyrir aftaniossa :bawl:

Re: poly fóðringar

PostPosted: Mon 31. Aug 2009 19:46
by jon mar
Alpina wrote:Poly er fyrir aftaniossa :bawl:


crybaby

Re: poly fóðringar

PostPosted: Mon 31. Aug 2009 19:50
by Alpina
jon mar wrote:
Alpina wrote:Poly er fyrir aftaniossa :bawl:


crybaby


ok

Re: poly fóðringar

PostPosted: Mon 31. Aug 2009 19:51
by jon mar
Alpina wrote:
jon mar wrote:
Alpina wrote:Poly er fyrir aftaniossa :bawl:


crybaby


ok

:mrgreen: