Startara vandamál

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Startara vandamál

Postby apollo » Wed 26. Aug 2009 14:18

Sælir,

Startarinn í bílnum hjá mér er eins og hann sé svo þungur, bara svona við það að drullast í gang þegar hann er kaldur og svo lenti ég í því að þegar ég kom útí hann áðan þá
bara vildi hann ekki gera neitt, það kom ljós á allt og radarvarinn vældi ekki um lowvolt eða neitt þannig. Ég prufaði að tengja á milli plús og mínus á startaranum og starta
svo og þá rauk hann í gang, bara eins og hann hafi staðið eithvað á sér. Geimirinn er í góðulagi, búið að mæla hann.


Ég var að pæla hvar er hægt að fá kol og fóðringar í þennann startara, eða hvort það sé bara að betra að fá startara hjá einhverjum,
og líka þá hvaða startarar passa á þennann mótor.

Þetta er e34m5 (mj877)

fyrirframm þakkir.
Ívar Helgi Grímsson

E34 ///M5 90
E21 315
Zx-6r 06
apollo
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 454
Joined: Sun 26. Apr 2009 15:26

Re: Startara vandamál

Postby 300+ » Wed 26. Aug 2009 16:32

Ættir að geta notað startara úr m30, s14 og m10. Skúli(srr) lumar örugglega á svona dólg handa þér.
300+
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 339
Joined: Tue 01. Apr 2008 14:00

Re: Startara vandamál

Postby sh4rk » Wed 26. Aug 2009 16:42

Það er sami startari í E32 735i og E34 535i og þessi startari er 1,7KW, eldri startaranir eru 1,1 og 1,5 KW og þeir eru hlunkar miða við þann sem er í bílnum hjá þér
Siggi
E23 735i
E32 740i 6 spd 8)
E38 740d
E32 735i Shadowline Seldur
E32 740i Seldur
E32 740i RIP
User avatar
sh4rk
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2837
Joined: Sat 14. Sep 2002 18:05
Location: Reykjavík

Re: Startara vandamál

Postby apollo » Thu 27. Aug 2009 00:02

Takk fyrir þetta, ég ætla að rífa hann úr og skoða þetta
Ívar Helgi Grímsson

E34 ///M5 90
E21 315
Zx-6r 06
apollo
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 454
Joined: Sun 26. Apr 2009 15:26


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 15 guests