Page 1 of 1
leiðinlegur draugur í rafmagninu í e30

Posted:
Tue 18. Aug 2009 01:19
by BMWPOWER
er með e30 sem virkar eins og hann hlaði ekkert eða voðalega lítið, þegar ég set hann í gang með fullan geymi þá virkar allt fínt þangað til eftir svona 2-4 tíma, þá fer snúningurinn að rokka upp og niður og svo endar það að hann drepi á sér og fer ekkert aftur í gang fyrr en að búið er að hafa hann tengan við annan bíl í smástund, og svo tekur hann líka uppá því að slökkva og kveikja á útvarpinu þegar áður en að hægagangurinn fer að rokka, en hleðsluljósið logar samt aldrei, er líka búinn að láta mæla altenathorinn og athuga kolin og það drasl og allt segir til að þetta sé í lagi, hvað gæti verið vandamálið?
Re: leiðinlegur draugur í rafmagninu í e30

Posted:
Tue 18. Aug 2009 07:38
by jens
Þarf ekki að vera að hleðsluljósið virki, fyndu þér AVO mæli ( venjulegan rafmagnsmæli ) og mældu á pólana á rafgeyminum hjá þér meðan bílinn er í gangi. Átta að fá allt að 14V.
Re: leiðinlegur draugur í rafmagninu í e30

Posted:
Tue 18. Aug 2009 12:32
by Lindemann
spurning hvort það sé ekki bara sprungin peran fyrir hleðsluljósið....þá hleður hann ekki
Re: leiðinlegur draugur í rafmagninu í e30

Posted:
Tue 18. Aug 2009 13:59
by BMWPOWER
er hugsanlega búinn að finna vandamálið, viftureiminn hefur verið orðinn gömul og slitinn og ákvað að slitna í gærkvöldi, vinur minn var að keyra og svo bara allt í einu bang og hleðsluljósið kviknaði með einvherju öðru aðvörunarljósi, kaupi nýja á efir og skelli henni í og sé svo hvort hann fari að hlaða, en svo er annað, hvernig kemst maður að perunum sem lýsa upp mælaborðið? soldið pirrandi að sjá ekki hvað maður fer hratt fyrr en maður er kominn vel yfir 100 og sjá ekki bensínmælinn heldur
Re: leiðinlegur draugur í rafmagninu í e30

Posted:
Tue 18. Aug 2009 14:04
by Einarsss
tekur mælaborðið úr og skiptir um.. mjög einfalt

Re: leiðinlegur draugur í rafmagninu í e30

Posted:
Thu 20. Aug 2009 22:18
by BMWPOWER
þegar maður svissar á hann þá kviknar hleðsluljósið en er soldið dauft og svo er annað aðvörunarljós sem er eins og hringur utanum upphrópunarmerki sem er líka soldið dauft, er farið að líða að bílprófinu og mig er farið að langa til að fá þetta til að virka almenilega svo maður geti farið að skrifa bless á malbikið á umferðaljósum
Re: leiðinlegur draugur í rafmagninu í e30

Posted:
Sun 23. Aug 2009 18:15
by Seli
er ekki hringurinn utan um upphrópunarmerkið bara handbremsan? held að það sé ekkert ti lað hafa áhyggjur af.
Re: leiðinlegur draugur í rafmagninu í e30

Posted:
Tue 25. Aug 2009 10:58
by Axel Jóhann
Seli wrote:er ekki hringurinn utan um upphrópunarmerkið bara handbremsan? held að það sé ekkert ti lað hafa áhyggjur af.
Nei, það er annað ljós, ég hef séð þetta einstaka sinnum í mínum e34 en ekki enn fundið út hvaða ljós þetta er.

Re: leiðinlegur draugur í rafmagninu í e30

Posted:
Sat 29. Aug 2009 00:31
by BMWPOWER
komið í lag, fór með altenathorinn og lét gera hann upp og nú vikrar allt eins og á að gera, takk fyrir góð svör, en ég var að hugsa um að skifta um perur í mælaborðinu bæði fyrir mælana og líka fyrir miðstöðina, en þá kemur spurninginn, er þetta mikið vesen eða bara peace of cake? þygg sem mestar upplýsingar
Re: leiðinlegur draugur í rafmagninu í e30

Posted:
Sat 29. Aug 2009 00:46
by ömmudriver
BMWPOWER wrote:komið í lag, fór með altenathorinn og lét gera hann upp og nú vikrar allt eins og á að gera, takk fyrir góð svör, en ég var að hugsa um að skifta um perur í mælaborðinu bæði fyrir mælana og líka fyrir miðstöðina, en þá kemur spurninginn, er þetta mikið vesen eða bara peace of cake? þygg sem mestar upplýsingar
Það er kökubiti að skipta um perurnar í mælaborðinu, bara losar þessar tvær skrúfur sem halda mælaborðinu en þær eru "uppi" eða fyrir ofan glerið og perurnar færðu t.d. í umboðinu
Ég veit svo aftur á móti ekki með miðstöðina en það getur ekki verið flókið, bara fikra sig áfram

Re: leiðinlegur draugur í rafmagninu í e30

Posted:
Sat 29. Aug 2009 15:25
by BMWPOWER
þannig, en þarf ekki að taka mælaborðið sjálft, til að geta komist að þeim skrúfum sem halda mælunum sjálfum?
Re: leiðinlegur draugur í rafmagninu í e30

Posted:
Sat 29. Aug 2009 22:05
by Einarsss